CROISETTE - KNIGHT FRANK
kynna í einkasölu jörðina Fróðá sem er ein af fallegustu jörðum Snæfellsness. Á jörðinni er reisulegt og endurnýjað að hluta 272 fm einbýlishús á tveimur hæðum með stofum, sjö svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, gufubaði og garðskála. Jörðinni tilheyra Fróða, Fróðárengi, Haukabrekka og Arnarhóll eða samtals um 2.000 hektarar. Um jörðina rennur laxveiðiáin Fróðá en í henni er veitt á tvær stangir og er veiðisvæðið upp að Fróðárfossi sem er um sex kílómetrar að lengd. Á jörðinni er líka góður níu holu golfvöllur. Stórkostlegt útsýni og mikil landgæði. Allar nánari upplýsingar veita Styrmir Bjartur Karlsson löggiltur fasteignasali í s. 899-9090 eða í styrmir@croisette.is og Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.isSMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLITSMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EIGNINA Í 3DEFRI-HÆÐ
NEÐRI-HÆÐNánari lýsing á fasteign:Húsið er steinsteypt á tveimur hæðum með stórum palli á efri hæð. Varmdæla og loftkælikerfi á báðum hæðum. Ljósleiðari. Svefnpláss fyrir allt að 14 manns. Arinn hlaðin Drápuhlíðargrjóti.
Efri hæð:Rúmgóð stofa með opnu eldhúsi með eldunareyju. Fjögur svefnherbergi á hæð. Sólstofa með tengist út á pall. Baðherbergi með sturtu og góðri innréttingu.
Neðri hæð:Tvö svefnherbergi. Sjónvarpsherbergi Þvottahús með vinnuborði með vog sem er nýtt sem verkunaraðstaða. Út frá því er vöðluberbergi þar sem hitatúba er ásamt geymsluherbergi með læstum skápum. Baðherbergi inná gangi. Sauna og sturta út frá sjónvarpsherbergi sem er einnig aðgengilegt út frá andyri sem leiðir út á hellulagðan yfirbyggaðan pall.
Nánari lýsing á jörðinni:Fróðá er í um það bil 5 mínútna akstursfjarlægð frá Ólasvík og skipar sögulegan sess í sögu landsins frá öndverðu og er steinsnar frá helstu náttúruperlum Snæfellsness. Jörðin Fróðá og tengdar jarðir liggja að sjó í norðri frá Bugstanga í vestri inn á land Haukabrekku í austri og þar með talin 3 km löng sandstrandlengja sem inniheldur m.a. efnisnámu sem er samþykkt af Snæfellsbæ. Í vestri liggur jörðin frá Bugstanga að Bugsvaðli vestan Fróðár til suðurs í landi Arnarhóls upp í Folahnjúk og þaðan til austurs eftir hæstu fjallgörðum Einbúa, Hests, Knarrarfjalls og síðan norður til Miðfells og Korra og þaðan vestur undir Valavatn og áfram norður niður með Laxá í suð-austanverðan Fróðárvaðal. Til er yfirlitskort af jarðarmörkum Fróðár.
Á jörðinni er auk húseignarinnar, laxveiðiáin Fróðá, efnisnáma í fjörunni og önnur upp á Fróðárheiði. Þarna er líka gott rjúpnaland, frábært berjaland, nægt beitarland og fallegar gönguleiðir og fossar. Golfklúbburinn Jökull í Snæfellsbæ hefur rekið og séð um golfvöllinn en innan skamms verður nýr völlur tekinn í notkun á Rifi og þá verður möguleiki að endurskipuleggja svæðið.
Um að ræða söluna á félaginu Fróðá ehf, kt. 410272-1649 í heild sinni sem er eigandi umræddra fasteigna og tengjast umboði þessu:Fróðá F2103315, Arnarhóll F2103284, Haukabrekka F2103341, Haukabrekkuengi F2336193. Að auki eru skráðar tvær aðrar fasteignir. Annars vegar Fróðá Snjótroðarahús F2508325 tekið úr landi Fróðár. Það er lítil spilda á Fróðárheiði afmörkuð utan um gamalt snjótroðarahús í eigu Snæfellsbæjar. Hins vegar Fróðá golfvöllur F206762. Sú landeign er leigð golfklúbbnum Jökli. Líklegt er að svæði það sem golfvöllurinn er á sé nokkurn vegin Haukabrekkuengi en fyrir þá fasteign finnst ekki afmörkun.
Nánari upplýsingar veita: Styrmir Bjartur Karlsson löggiltur fasteignasali í s. 899 9090 eða styrmir@croisette.is
Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.