Fasteignaleitin
Skráð 30. apríl 2024
Deila eign
Deila

Urriðaholtsstræti 34

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
119 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
95.900.000 kr.
Fermetraverð
805.882 kr./m2
Fasteignamat
86.150.000 kr.
Brunabótamat
72.040.000 kr.
Mynd af Ársæll Steinmóðsson
Ársæll Steinmóðsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2020
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2508474
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Svalir
Suðursvalir
Lóð
6,15
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Hraunhamar fasteignasala og Ársæll lögg.fasteignasali S:896-6076  og Vala Gissurardóttir lögg. fasteignasali s. 791-7500 kynna í einkasölu glæsilega, vel skipulagða og bjarta nýlega 4 herbergja íbúð á 3 hæð í 5 hæða lyftuhúsi á Urriðaholtsstræti 34 (merkt 032) ásamt bílastæði í lokaðri bílageymslu. Samkvæmt birtum fm er íbúðin 114 fm og geymsla á 1 hæð 5 fm. Aðalinngangur og bílastæði eru á 2 hæð frá Urðargötu en einnig eru inngangur og bílastæði að neðanverðu inn á 1 hæð. Útveggir eru steinaðir að utan með dökku kvarsi sem veita mjög góða veðurvörn. 

Íbúðin er með glugga á 3 hliðar og er mjög fallegt útsýni til austurs og norðurs úr stofu, eldhúsi svefnherbergjum. Gólfefni eru harðparket og flísar. Úr stofu er útgengt á sólríkar suðursvalir.

Mjög góð staðsetning í Urriðaholtinu þar sem stutt er í stofnbraut og fallegar gönguleiðir í Heiðmörk, Vifilstaðavatni og í kringum Urriðakotsvatn. Í næsta nágrenni eru 3 golfvellir og stutt í fjölbreytta verslun, þjónustu í Kauptúni. Í Vinastræti er lítill þjónustukjarni með m.a kaffihúsi og neðar í götunni er veitingastaður verslun.


Nánari Lýsing:
Anddyri er með flísum á gólfi og góðum fataskápum.
Gangur er með fallegu harðparketi á gólfi.
Stofa er björt og rúmgóð í alrými með fallegu harðparketi á gólfi og fallegu útsýni til austurs, norðurs. Útgengt er á góðar suðusvalir.
Eldhús er með fallegu harðparketi á gólfi og fallegri ljósgrárri innréttingu. Eyja með helluborði, háf, bakaraofni og góðum skúffum. Hægt er að sitja við eyjuna. Gólfsíður gluggi með fallegu útsýni yfir Heiðmörk.
Hjónaherbergi er rúmgott með fallegu harðparketi á gólfi og góðum fataskápum. Fallegt útsýni til norðurs og austurs.
Svefnherbergin eru bæði með fallegu harðparketi á gólfi og fataskápum. Fallegt útsýni m.a yfir Heiðmörk.
Baðherbergi er með hita í gólfi,  flísum á gólfi og veggjum. Falleg ljósgrá innrétting með handlaug og góðum spegli með ljósum fyrir ofan, upph.wc, handklæðaofni og "walkin"sturtu.
Þvottahús er með flísum á gólfi, vinnuborði og stálvaski.
Geymsla innan íbúðar er með flísum á gólfi.
Geymsla á fyrstu hæð merkt 108 er 5 fm.
Stæði í bílageymslunni er merkt íbúðinni og á vegg er tengill fyrir rafbíla og er mögulegt að setja hleðslustöð. Hefur verið gert í nokkrum bílastæðum.

Sameign er björt og falleg með flísum og teppum á gólfum og stigum. Rúmgóðir stigapallar og breiðar tröppur. Í sameign er hjóla og vagnageymsla þ.s eru hillur fyrir dekk þ.s hver íbúð á sína hillu.

Falleg eign í vönduðu og góðu fjölbýli.

Allar nánari upplýsingar veitir Ársæll Ó. Steinmóðsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6076 eða sendið tölvupóst á netfangið arsaell@hraunhamar.is  
                                                     Valgerður Ása Gissurardóttir löggiltur fasteignasali í síma 791 7500 eða vala@hraunhamar.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Stimpilgjald af veðskuldabréfi - 0% af höfuðstól skuldabréfs. 
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
5. Umsýslugjald til fasteignasölu kr.68.200.-m.vsk.

Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983 og fagnar því 40 ára afmæli á árinu 2023. 
Hraunhamar, í fararbroddi í 40 ár. – Hraunhamar.is 

Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
28/04/202157.650.000 kr.64.000.000 kr.119 m2537.815 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Byggt 2020
Fasteignanúmer
2508474
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
4
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.590.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hofakur 7
Bílastæði
Opið hús:05. maí kl 14:00-14:30
Skoða eignina Hofakur 7
Hofakur 7
210 Garðabær
142.8 m2
Fjölbýlishús
313
700 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 2E
3D Sýn
Skoða eignina Eskiás 2E
Eskiás 2E
210 Garðabær
139.4 m2
Fjölbýlishús
514
702 þ.kr./m2
97.900.000 kr.
Skoða eignina Holtsvegur 18
Opið hús:02. maí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Holtsvegur 18
Holtsvegur 18
210 Garðabær
129.3 m2
Fjölbýlishús
413
773 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Maríugata 3 íb. 505
Bílastæði
Maríugata 3 íb. 505
210 Garðabær
104.9 m2
Fjölbýlishús
413
886 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache