DV logo
Fasteignaleitin
Opið hús:01. nóv. kl 15:00-15:30
Skráð 28. okt. 2026

Stigahlíð 32

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
55.9 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
55.700.000 kr.
Fermetraverð
996.422 kr./m2
Fasteignamat
50.800.000 kr.
Brunabótamat
30.950.000 kr.
Mynd af Berglind Hólm Birgisdóttir
Berglind Hólm Birgisdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1962
2. hæð af 4
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2031042
Landnúmer
107197
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Gluggar / Gler
endurnýjað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
já
Upphitun
ofnakerfi
Inngangur
Sameiginlegur
Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: Einstaklega falleg, mikið endurnýjuð og vel skipulögð íbúð á frábærum stað miðsvæðis í Reykjavík. Íbúðin er 2ja herbergja á 2.hæð í húsið sem hefur fengið gott viðhald og mikið verið endurnýjað síðustu árin. Íbúðin sjálf var nánast öll endurnýjuð að innan fyrir um 4-5 árum síðan og sérlega fallegan hátt. Gengið er upp eina og hálfa hæð að íbúðinni sem er horn íbúð og því með glugga í tvær áttir. Allir gluggar í íbúðinni hafa verið endurnýjaðir og eru úr plasti og með hljóðeinangrandi gleri. Stigagangurinn er einkar snyrtilegur og bæði er lítil geymsla á gangi fyrir framan íbúðina og einnig er sér geymsla í sameigninni. Sameiginlegt þvottaherbergi er í sameign. 
Öll helsta þjónusta er í stuttu göngufæri svo sem verslunarmiðstöðin Kringlan, verslunarkjarninn Suðurver og margt margt fleira. Stutt er í Menntaskólann við Hamrahlið, Verslunarskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík og Háskóla Íslands. Útivistarsvæðið Klambratún er í 4 mínútna göngufæri frá eigninni. 
Húsið fær reglubundið og gott viðhald, Þak og allir gluggar voru endurnýjaðir 2019. Rafmagn í sameign var endurnýjað 2021. Stigagangur er einnig nýlega tekin í gegn. 


Allar helstu upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is

Nánari lýsing eignar: 

Komið er inn í anddyri á jarðhæð hússins. Nýlegt dyrasímakerfi er í anddyrinu. Gengið er upp eina og hálfa hæð upp um snyrtilegan teppalagðan stigagang. Nýjar eldvarnahurðar eru inn í allar íbúðir stigahússins. 
Forstofa: Komið er inn í forstofu með harðparketi á gólfi. Rétt innan við forstofuna er tvöfaldur forstofuskápur. 
Eldhús: Eldhúsið er allt endurnýjað með fallegri innréttingu í vinkil og miklu skápa og vinnuplássi. Í innréttingu er innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél. Neðri skápar eru í vinkil ásamt því eru efri skápar á einn vegg og gluggi á einn vegg við vaskinn. Skápar eru hvítir og borðplata er í fallegu hnotu útliti. Rými er fyrir borðkrók í eldhúsinu. Fallegt harðparketi er á gólfi 
Stofa: Stofan er með fallegu harðpaketi á gólfi og rúmast vel. Sirka meters hár skápur skilur á milli stofunnar og forstofu holsins þar sem forstofuskápurinn er. 
Baðherbergi: Baðherbergið var allt endurnýjað á síðustu árum með einstaklega fallegum og skemmtilegum munstruðum flísum á gólf sem ganga upp á framhlið baðkarsins og hvítum flísum á veggjum. Baðkarið er með sturtuaðstöðu og glerskilrúmi. Hvít innrétting er undir vaski og speglaskápur er á vegg fyrir ofan vaskinn. Salernið er upphengt og vatnskassinn er innbyggður og flísalagður. Handklæðaofn er á vegg. 
Svefnherbergi: Hjónaherbergið er rúmgott með fallegu harðparketi á gólfi og góðum fataskápum. Útgengt er á svalir frá svefnherberginu. 
2 x geymsla: Tvær geymslur fylgja íbúðinni. Önnur geymslan er á stigapalli beint fyrir framan íbúðina og nýtist frábærlega til dæmis sem kústaskápur + geymsla. Einnig fylgir íbúðinni sérgeymsla í sameign sem er 4,2 m2. 
Þvottahús: Í sameign er sameiginlegt þvottahús þar sem hver íbúð hefur rými fyrir sína vél. 
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign. 

Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
11/10/202131.100.000 kr.36.900.000 kr.55.9 m2660.107 kr.Já
03/09/202131.100.000 kr.36.900.000 kr.55.9 m2660.107 kr.Já
26/11/201414.550.000 kr.20.750.000 kr.55.9 m2371.198 kr.Já
22/06/200611.100.000 kr.12.500.000 kr.53.3 m2234.521 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (23)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Dalsmúli 3
Skoða eignina Dalsmúli 3
Dalsmúli 3
108 Reykjavík
69,3 m2
Fjölbýlishús
312
1081 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Sólvallagata 21
Skoða eignina Sólvallagata 21
Sólvallagata 21
101 Reykjavík
49,9 m2
Fjölbýlishús
211
1032 þ.kr./m2
51.500.000 kr.
Skoða eignina Fögruvellir 2B
Á einni hæð
Skoða eignina Fögruvellir 2B
Fögruvellir 2B
301 Akranes
70 m2
Fjölbýlishús
312
856 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Víðimelur 59
Skoða eignina Víðimelur 59
Víðimelur 59
107 Reykjavík
76,3 m2
Fjölbýlishús
312
955 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin