SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
GLÆSILEGA LÚXUSVILLU MEÐ ÚTSÝNI YFIR GOLFVÖLL Á LAS COLINAS**
Einstök og afar glæsileg 5 herbergja lúxusvilla, þe. 4 svefnherbergi, öll með sér baðherbergi + gestasnyrting, á einu eftirsóttasta svæði Costa Blanca, Las Colinas Golf & Country Club. Um er að ræða nútímalega og vandaða eign frá árinu 2020 þar sem hönnun, gæði og þægindi fara fullkomlega saman.
Húsið er alls 278 m² og stendur á 449 m² lóð á móti suðri með fallegu útsýni m.a. yfir golfvöllinn, til sjávar og nærliggjandi náttúru. Stór og vel hannaður einkagarður með einkasundlaug, verönd og fallegu útisvæði sem hentar fullkomlega til að njóta lífsins undir spænskri sól.
ALLAR UPPLÝSINGAR GEFA:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is – GSM 00354 893 2495 og
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is – GSM 0034 615 112 869
FRÁBÆRT SKIPULAG:Björt og rúmgóð stofa með opnu eldhúsi og borðstofu í nútímalegum stíl. Eldhúsið er sérlega glæsilegt með hágæða tækjum, vínkæli og vandaðri hönnun. Tveir ísskápar og sér frystiskápur. Stórar rennihurðir tengja innirýmið beint við útisvæðið og skapa samfellda og fallega heild. Stór verönd með sundlaug.
Alls eru 4 rúmgóð svefnherbergi, öll með sérbaðherbergi (en-suite), sem tryggir hámarks þægindi og næði fyrir íbúa og gesti. Tvö herbergjanna eru á neðri hæð en á efri hæð eru tvær fallegar svítur með opnu útsýni. Gestasnyrting og þvottahús.
EINSTAKT UMHVERFI OG STAÐSETNING:Las Colinas golfsvæðið er eitt það virtasta á Spáni og hefur verið valið besta golfsvæðið á Spáni í mörg undanfarin ár.
Svæðinu er oft lýst sem "A World Apart" – einstakur heimur, umhverfi þar sem ró, gæði og náttúrufegurð ráða ríkjum.
Stutt er í:
Fallegar strendur (ca. 10–15 mín akstur)
Veitingastaði og þjónustu
Aðra vinsæla golfvelli á svæðinu
Verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard
Íbúar hafa einnig aðgang að einkastrandklúbbi á Campoamor ströndinni.
AÐSTAÐA:Einkasundlaug
Sér garður
Verönd og útisvæði
Bílskúr og bílastæði
Nútímaleg og vönduð eign
VERÐ:ISK: 246.500.000 (1.700.000 Evrur) + kostn. við kaupin. (1 Evra = 145ISK)
EIN AF BETRI EIGNUM Á LAS COLINAS SVÆÐINU Í DAG.SKOÐUNARFERÐIR:Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
ÖRUGG KAUP OG REYNSLA:Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001 – tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isKOSTNAÐUR VIÐ KAUP:10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar.
Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar.
Samtals getur kostnaður því verið um 13% af kaupverði.
EIGINLEIKAR:
golf, sér garður, einkasundlaug, air con, bílastæði
SVÆÐI:
Costa Blanca – Las Colinas