DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 8. sept. 2026

Kvisthagi 18

HæðHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
150.3 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
135.000.000 kr.
Fermetraverð
898.204 kr./m2
Brunabótamat
69.390.000 kr.
Byggt 1951
Jarðhæð
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
20278732
Húsgerð
Hæð
Inngangur
Sérinngangur

Eignamiðlun kynnir:

Góð hæð á gróinni og skjólsælli lóð á frábærum stað í Vesturbænum. Fjölskylduvæn eign á eftirsóttum stað. Bílskúr.

*** Sækja söluyfirlit ***

Bókið skoðun. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, kari@eignamidlun.is 

Um er að ræða nánar tiltekið íbúð 101 að Kvisthaga 18, 105 Reykjavík, F2027873. 5 herbergja hæð með bílskúr. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 150,3 fm, þar af er íbúðarrými 120,7 fm, bílskúr er skráður 29,6 fm. Íbúðarrými skiptist í anddyri, hol, eldhús, stofu/borðstofu, sjónvarpsstofu (mögulegt fjórða svefnherbergi), þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Svalir eru út frá hjónaherbergi. Bílskúr er í bílskúrslengju við húsið.

Nánari lýsing eignar: 
Anddyri er með fataskáp. Dúkur á gólfi. 
Herbergi 1 er forstofuherbergi með innbyggðri hillu. Dúkur á gólfi. 
Hol er í hjarta íbúðarinnar með fataskáp. Dúkur á gólfi. Hægt að ganga um dyr niður í sameign. 
Eldhús er með upprunalegri innréttingu sem hefur verið gerð upp á snyrtilegan hátt. Hvítmáluð. Siemens eldhústæki, eldavél og háfur. 
Stofa / borðstofa (dagstofa á teikningu) er bjart og skemmtilegt rými með glugga í tvær áttir. Dúkur á gólfi. 
Sjónvarpsstofa (borðstofa á teikningu) er rúmgóð. Falleg rennihurð er á milli sjónvarpsstofunnar og stofu/borðstofu. Dúkur á gólfi. Þetta rými gæti hæglega verið nýtt sem fjórða svefnherbergið. 
Herbergi 2 er rúmgott hjónaherbergi með tvöföldum fataskáp. Dúkur á gólfi. Útgengt er á svalir úr herberginu. 
Herbergi 3 er minnsta herbergið, ekki með innbyggðum fataskáp. Dúkur á gólfi. 
Baðherbergi er snyrtilega uppgert með snyrtilegri hvítri innréttingu með skúffum, handlaug og efri speglaskáp. Salerni, skápar fyrir ofan salerni. Baðkar með sturtu. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf og með marmara í gluggakistu. Opnanlegur gluggi. 
Þvottahús er sameiginlegt í kjallara hússins. 
Tvær geymslur í kjallara hússins tilheyra íbúðinni. 
Bílskúr er í bílskúrslengju við húsið. Innkeysluhurð með mótor að framan. Inngönguhurð að aftan og gluggar. Stórt malarplan fyrir framan bílskúrana og auk þess er lagt við götuna. 

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar. 
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í. 

Nánari lýsing eignarinnar:
Nánari upplýsingar veita
Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali í síma 899-8815, kari@eignamidlun.is
Kjartan Hallgeirsson Löggiltur fasteignasali í síma 824-9093, kjartan@eignamidlun.is
eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (40)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Rekagrandi 7
Bílskúr
Opið hús:08. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Rekagrandi 7
Rekagrandi 7
107 Reykjavík
125,7 m2
Fjölbýlishús
413
715 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunbær 7
3D Sýn
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Opið hús:08. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hraunbær 7
Hraunbær 7
110 Reykjavík
165,3 m2
Raðhús
614
822 þ.kr./m2
135.900.000 kr.
Skoða eignina Norðurbyggð 9b
Á einni hæð
Skoða eignina Norðurbyggð 9b
Norðurbyggð 9b
815 Þorlákshöfn
150 m2
Raðhús
413
547 þ.kr./m2
82.000.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47
Opið hús:08. okt. kl 16:00-16:30
Skoða eignina Hjallabraut 47
Hjallabraut 47
220 Hafnarfjörður
157,5 m2
Raðhús
423
1073 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin