Hugguleg og klassísk íbúð með fallegu útsýni á vinsælli staðsetningu við Reynimel 74 í Vesturbænum.* Endurnýjað eldhús
* Stórar svalir til suð-vesturs
* Snyrtileg sameign
* Laus straxViðhald hússins síðastliðin ár tiltelur ma.:2025 var múrviðgert og málað að utan, þak yfirfarið og málað. Þá voru líka gluggar yfirfarnir og endurnýjað eftir þörf.
2023 var uppsett rafhleðslu-staurar við bílastæði.
2021 voru viðgerðar frárennslislagnir undir blokkinni og út í brunn. Þá var einnig endurnýjað dren meðfram blokkinni.
Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð samkv. HMS er 59,60 m2.
Eignin skiptist í hol, stofu / borðstofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi, geymslu og sameign.Hol er með parket á gólfi.
Stofa / borðstofa eru með parket á gólfi, bjart rými. Útgengt út á svalir til suð-vesturs. Rúmgóðar
Eldhús er flísalagt með innréttingu með helluborði, viftu og bakarofn. Borðkrókur við glugga.
Baðherbergi er flísalagt með baðkari með sturtuaðstöðu, wc og handlaug.
Svefnherbergi er með parket á gólfi og fataskáp.
Sérgeymsla er í sameign.
Í sameign er einnig sameiginlegt þvottahús og hjóla / vagnageymsla.
Lukkuleg staðsetning í Vesturbænum og stutt í ýmsa þjónustu og skemmtilega menningu, verslun einsog Melabúðin, ísbúðin og önnur sérvöruverslun. Sundlaug Vesturbæjar á næsta leiti sem og íþróttir og skólar.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.