Falleg hæð/raðhús við Öldutún 3 í Hafnarfirði. Húsin eru byggð einsog fjögur raðhús í einni raðhúsalengju en í kjallara í hverju húsi er lítil íbúð þannig eignin er skilgreint sem hæð hjá HMS. Eignin er alls 171,6 fm að stærð sem skipist þannig að íbúðin er 147,3 fm sem skiptist þannig að neðri hæðin er 79,8 fm og efri hæðin er 67,5 og bílskúrinn 24,3 fm.
Neðri hæð: Forstofa með flísum á gólfi og fatahengi. Gestasnyrting innaf forstofu með flísum á gólfi og vegg, gluggi, wc í vegg. Herbergi með vínylparket á gólfi. Stofa með vínylparket á gólfi, borðstofa með flísum á gólfi, útg. út á svalir og þaðan er tenging út í garðinn. Eldhúsið er með flísum á gólfi og á vegg á milli skápa, helluborð, vifta, stæði f. uppþvél. Geymsla er undir stiga.
Efri hæðin: Steyptur stigi með viðþrepum. Komið í hol/alrými með h.parket á gólfi, fjögur herbergi með h.parket á gólfi og skápum, útg. út á svalir í suðurátt úr hjónaherberginu. Baðherbergi með flísum á gólfi og vegg, innrétting, baðkar, þvottaaðstaða er inná baðherberginu. Kalt geymslurými uppá háalofti.
Bílskúrinn: er með hita, rafmagni og vatni.
Lóð er ræktuð.
Örstutt í leik-grunn- og framahaldsskóla og svo í miðbæ Hafnarfjarðar þar sem stutt er í alla þjónustu og iðandi mannlíf miðbæjarins.
Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / eirikur@as.is
og Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is