RE/MAX og Oddur Fasteignasali kynna í einkasölu: Falleg og björt tveggja herbergja íbúð á 1. hæð við Lækjasmára 2 í Kópavogi. Íbúðin er skráð 73,1fm þar af geymsla 5,5 fm. Eigninni fylgir verönd sem snýr í suður, sér geymsla í kjallara og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin, bílaplan er stórt með nóg af bílastæðum og búið að setja upp hleðslustaura fyrir rafmagnsbíla.
Allar nánari upplýsingar veitir Oddur Grétarsson löggiltur fasteignasali, s: 782-9282 eða á oddur@remax.is.
Smelltu hér til að skoða eignina í 3-D
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent beint af vef remax.isNánari lýsing:Forsofa: harðperket á gólfi og fataskápur.
Eldhús: hvítlökkuð innrétting, tengi fyrir uppþvottavél, parket á gólfi og góður borðkrókur sem tengir við stofu.
Stofa: er rúmgóð og björt með gluggum á tvo vegu, útgengt á verönd sem snýr í suður.
Svefnherbergi: mjög rúmgott með stórum fataskáp með hvítlökkuðum hurðum.
Baðherbergi: flísar á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, sturtuklefi og handklæðaofn.
Verönd: er hellulögð og snýr í suður, skjólveggir beggja veggna.
Geymsla: er í sameign 5,5fm.
Húsið er á mjög vinsælum stað þar sem stutt er í Smáratorg, Smáralind, heilsugæslu, líkamsræktarstöð, leikskóla og skóla.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk