Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 jason@betristofan.is og
Betri Stofan kynna:
Kársnesbraut 53, Íbúð 201. Falleg og björt 3 herb. 73,5 fm. íbúð á 1.hæð á Kársnesbraut 53 í Kópavogi. Eigninni fylgir 4,8 fm geymsla. Þetta er eign á góðum stað á Kársnesinu í Kópavogi. Stutt er í stofnbrautir og þjónustu eins og verslanir, heilsugæslu, grunn- og leikskóla. Í næsta nágrenni við Kópavogslaug, bakarí og veitingastað, Hamraborg o.fl., ásamt göngu – og hjólaleiðum á Kársnesinu. Eignin er staðsett innst í botnlanga og því minni umferð við aðkomu.
Skipulag íbúðar: Anddyri, stofa og eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, pallur í bakgarði sem snýr til suðurs.Anddyri með parketi á gólfi.
Stofa með parketi á gólfi, gengið út á pall sem snýr í suður.
Eldhús er rúmgott og opið með parketi á gólfi. Þvottavél innbyggð í innréttingu og skáphurð fyrir. Fallegt útsýni. Upphaflega var sér þvottahús skv teikningu, og fyrri eigendur breyttu/stækkuðu eldhús á kostnað þess.
(sjá upphaflega teikningu af vef Kópavogs)Hjónaherbergi með parketi á gólfi og stórum fataskáp. Á herbergjagangi er rafmagnstafla íbúðar.
Barnaherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi með sturtu. Flísalagt í hólf og gólf. Upphengt salerni. Lögn fyrir handklæðaofn.
Geymsla er á jarðhæð og er 4,8 fermetrar að stærð. Sameiginleg hitakompa.
Harðparket er á öllum gólfum nema í baðherbergi þar eru flísar.
Endurbætur í séreign: 2016: Skipt um eldhúsinnréttingu,nýjar innihurðir, nýtt parket og gólflistar. Rafmagnstenglar og rofar endurnýjaðir. Nýjar ofnalagnir, frá grind í ofna. Tveir nettenglar í stofunni settir upp og í báðum svefnherbergjum.
2020: Nýtt gler og listar í glugga í eldhúsi.
2023: Sandblástursfilmur settar neðst í glugga sem snúa út að götu.
Endurbætur í sameign:2020: Skipt um þrýstijafnara í lagnagrind. Nýtt gler og listar í glugga í sameign/stigagang. Múrviðgerðir að utan.
2021: Húsið málað að utan.
2025: Þak pússað og ryðvarið. Þakrennur hreinsaðar og frárennsli bætt.
2026: Nýjar eldvarnarhurðir að öllum íbúðum.
Fyrirhugaðar framkvæmdir í sameign: 2026: Skipta um teppi í stigagangi og mála. Til er í hússjóði fyrir framkvæmdunum.
Allar nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson, jason@betristofan.is í síma 7751515