Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Langahlíð 7B
Um er að ræða mikið endurnýjaða fimm herbergja raðahúsaíbúð á einni hæð ásamt innbyggðum bílskúr í Glerárhverfi. Eignin er skráð samtals 167,7 fm. að stærð, þar af er bílskúr skráður 17,4 fm. Vel staðsett eign í nálægð við leik- og grunnskóla, verslun, heilsugæslu, Glerártorg og fleira.
Eignin skiptist í forstofu, gang, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús, eldhús, borðstofu og stofu og bílskúr.
Eins og áður segir er eignin mikið endurnýjuð síðan 2020. Meðal annars sem var endurnýjað, allar innihurðir, innréttingar sem og eldhústæki og blöndunartæki. Rafmagn endurnýjað, nýjir tenglar og ný tafla. Neysluvatnslagnir, klóak og ný hitaveitugrind. Nýtt inntak fyrir heita og kalda vatnið. Gólfhiti og ný gólfefni í öllum rýmum nema í bílskúr. 2023 voru settir nýjir gluggar austan megin og skipt um stóra gluggann í stofunni.
Forstofa með parketi á gólfi og góðum fataskáp. Innangengt er í bílskúrinn úr forstofu.
Svefnherbergin eru fjögur, tvö stór og tvö minni. Parket er í öllum herbergjum og skápar í öllum nema einu.
Þvottahús með flísum á gólfi, þvottahúsið er mjög rúmgott með glugga og útgengi út á verönd til suð/vesturs. Góð innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð ásamt vaski og innréttingu með vinnuplássi. Innaf þvottahúsi er baðherbergi og eitt af svefnherbergjunum.
Baðherbergin eru tvö, eitt innaf þvottahúsi og eitt á herbergisgangi. Baðerbergið á herbergisgangi er með flísum á gólfi, baðkar, upphengt wc, handklæðaofn, innrétting við vask ásamt góðum skáp og opnanlegum glugga. Baðherbergið innaf þvottahúsi er með flísum á gólfi, og veggjum að mestu, sturta með glerskilrúmi, innrétting við vask, upphengt wc og hangklæðaofni.
Eldhús með parketi á gólfi, góð innrétting með góðu vinnuplássi, stæði fyrir tvöfaldan ísskáp, ísskápur getur fylgt (vatn og klaki bilað en frystir og kælir virka) Bakaraofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél, spanhelluborð og vifta út.
Stofa og borðstofa í opnu rými með parketi á gólfi.
Bílskúr er skráður skv. HMS 17,4 fm. að stærð og er innangengt úr forstofu og er þar lúga upp á lítið geymsluloft. Bílskúrinn er nýttur sem geymsla og er þar einnig auka inngangur.
A.t.h. grunnmyndinni hefur verið breytt lítilega til að sýna núverandi nýtingu á eigninni.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
berglind@byggd.is
olafur@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955