Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Stórholt 3 - 101
Um er að ræða mikið endurnýjaða fjögurra herbergja íbúð á neðri hæð í tvíbýli ásamt stakstæðum bílskúr. Sér inngangur er í íbúðina, góð bílastæði og verönd til suðvesturs. Eignin er samtals skráð 150,7 fm að stærð og þar af er bílskúr 27,2 fm..
Eignin skiptist í forstofu, gang, hol, lítil geymsla, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofa og borðstofa.
Forstofa með parket á gólfi og fataskáp.
Lítil geymsla er á gangi með rennihurð. Gott skápapláss á gangi.
Baðherbergi er endurnýjað með flísum á gólfi og veggjum, upphengt wc, sturta með glerskilrúmi og innrétting við vask, opnanlegur gluggi á baði. Gólfhiti á baði.
Svefnherbergin eru þrjú, öll eru þau með parket á gólfi og eru fastir skápar í hjónaherberginu.
Eldhús er endurnýjað með parket á gólfi, gengið inn í eldhús frá holi og borðstofu. Af holi er útgengi út á góða verönd til suð-vesturs. Mjög gott skápapláss í eldhúsi sem og vinnurými, flísar milli efri og neðri skápa. Tækjaskápur með rafmagnstenglum, eyja með skúffum, tveir ofnar í vinnuhæð. Uppþvottavél og tvöfaldur ísskápur í innréttingu fylgja með.
Þvottahús er innaf eldhúsi með rennihurð. Flísar á gólfi og opnanlegur gluggi, ný innrétting með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, gott vinnupláss ásamt efri skápum.
Stofa og borðstofa í opnu og björtu rými með parket á gólfi.
Bílskúr er stakstæður og er óeinangraður. Rafdrifin bílskúrshurð, kalt vatn og rafmagn. Góð bílastæði.
Annað: - Sér inngangur
- Bílskúr
- Góð verönd, ath. heittur pottur fylgir ekki.
- Ljósleiðari
- Eirlagnir
- Lóð sameiginleg
- Mikið endurnýjuð, eldhús, baðherbergi, þvottahús, tenglar og rofar endurnýjaðir, parket. Ofnar endurnýjaðir að hluta. Þak og þakkantur málað fyrir ca 3-4 árum síðan.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:greta@byggd.is
olafur@byggd.is
bjorn@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:
464 9955