Fasteignasalan TORG kynnir bjart og vel skipulagt raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr á skjólsælum stað í Akrahverfinu við Árakur 4. Eignin er skráð 231,9 fm og skiptist húsið í stofu og eldhús í opnu rými, þrjú til fjögur svefnherbergi, fataherbergi, sjónvarpsherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Tvennar svalir eru á húsinu, afgirtur garður og rúmgott bílastæði í innkeyrslu með snjóbræðslu. Gólfhiti á neðri hæð hússins og votrýmum efri hæðar. Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0000 eða í tölvupósti: darri@fstorg.is
Nánari lýsing neðri hæðar:
Forstofa, flísalögð með góðum fataskáp.
Baðherbergi, flísalagt að hluta með gólfhita, innréttingu, upphengdu salerni og walk-in sturtu.
Vinnuherbergi (8,2 fm), flísalagt. Hægt að nýta sem svefnherbergi en skráð sem geymsla á teikningum.
Eldhús með góðri innréttingu og stein á borðum, mikið skápapláss, innbyggð tæki og bakaraofn í vinnuhæð. Flísar á gólfi.
Stofa og borðstofa í björtu og opnu rými, parket á gólfi og útgengt á afgirta verönd.
Bílskúr (27,2 fm), innangengt frá forstofu.
Steypur parketlagður stigi á milli hæða, gler- og stálhandrið.
Nánari lýsing efri hæðar:
Sjónvarpsherbergi (17 fm), mjög bjart og rúmgott, parket á gólfi og útgengt á NV svalir (10,2 fm). Hægt að loka þessu rými af og bæta við svefnherbergi.
Hjónaherbergi með fataherbergi (24,1 fm), parket á gólfi og útgengt á SA svalir (12,8 fm)
Barnaherbergi I (16,4 fm) með fataskáp, parket á gólfi.
Barnaherbergi II (18,8 fm) með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi, flísalagt í hólf í gólf með gólfhita, innréttingu, upphengdu salerni, baðkari og walk-in sturtu.
Þvottahús, flísalagt með gólfhita og innréttingu
Húsið er klætt með láréttri báraðri málmklæðningu og keramik flísum. Allur frágangur að utan tryggir lágmarksviðhald. Þakplata (filigran með ásteypulagi) er einangruð með plasteinangrun sem er varin með þakdúk sem haldið er niðri með harpaðri möl. Gluggar eru úr timbri og áli og eru glerjaðir með tvöföldu K-gleri (aukið einangrunargildi). Svalahandrið eru úr hertu gleri. Lóð fullfrágengin með hellulagðri innkeyrslu með snjóbræðslu. Afgirt með skjólvegg nv baklóð með nýlegum timburpalli.
Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0000 eða í tölvupósti: darri@fstorg.is