Gimli og Inga Reynis kynna í einkasölu fallega 3 ja herbergja fallega íbúð á annarri hæð, talsvert mikið uppgerða, bjarta og með tvennum svölum.
Bílskúrsréttur tilheyrir íbúðinni ásamt sérmerktu bílastæði framan við eldhúsglugga.
Um er að ræða frábæra staðsetningu mjög miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í alla verslun og þjónustu.
Leikskóli og grunnskóli við hliðina á húsinu, ekki þarf að fara yfir götu.
Stutt í allar helstu stofnæðar höfuðborgarsvæðisins
Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 93,8 fm og þar af er geymsla í kjallara 8,4 fm
Nánari lýsing:
Anddyri er með fataskáp og parketi á gólfi, ásamt hitaskáp fyrir framan inngang í eignina.
Stofa og borðstofa er samliggjandi með parketi á gólfi og útgengi á vestur svalir.
Eldhús er með nýrri innréttingu og fínu skápaplássi, uppþvottavélartengi, nýjum ofni og nýju keramikhelluborði, borðkróki og vínilflísum á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskáp og dúk á gólfi og útgengi á austur svalir.
Barnaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi.
Baðherbergi er með nýjum flísum á veggjum og gólfi, innfeldum skáp, baðkari með sturtu, glugga og tengjum fyrir þvottavél.
Sérgeymsla í kjallara 8,4 fm.
Þvottahús með þurkaðstöðu er sameiginlegt í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla er sameiginleg í kjallara hússins.
Bílastæði og bílskúrsréttur: sérmerkt bílastæði framan við eldhúsglugga.
Viðhald í íbúð undanfarin ár, að sögn seljanda.
Parket er fljótandi eikarparket, upprunalegar en sem nýjar inni- og skápahurðir, vaskur og innrétting á baði, eldhúsinnrétting er ný ásamt ofni og helluborði og tengi fyrir uppþvottavél, nýlagt gólfefni á eldhúsgólfi, dyrasími, ofnar og ofnalagnir.
Viðhald á húsi undanfarin ár, að sögn seljanda.
2024: Frárennslislögn/drenlögn í kjallara stigagangsins hreinsuð og vatnsdæla sem staðsett er í S-38 og er tengd drenlögnum undir endilöngu húsinu
endurnýjuð, kaldavatnsinntak í stigagangi endurnýjað sérstaklega. Dyrabjöllur og dyrasími endurnýjað.
2022 - 2023: Húsið var sprunguviðgert að utan og málað, þakið var málað, svalahandrið hækkuð með glervegg, gluggar og gler í stigagöngum endurnýjað,
skipt um gler og glugga í húsinu eftir þörfum hjá hverjum og einum, rafmagnstafla í sameign stigagangs endurnýjuð og ljós í stigagangi endurnýjuð, rafmagn í
anddyri stigagangs endurnýjað, þakdúkur ofan á anddyri endurnýjaður. Þá var timburgrindverk sett sett upp kringum húsið og garðinum lokað fyrir umferð
óviðkomandi. Í garði er sandkassi og róla.
2003 - 2004: Allar lagnir að og frá húsinu öllu (34-36-38) var endurnýjað og jarðvegsskipti gerð; kaldavatnslagnir, heitavatnslagnir, heimtaugar rafmagns og
síma, ljósleiðaratengingu komið á, þá var allt frárennsliskerfið (plaströr) endurnýjað frá húsvegg og út í brunn við norðurgafl, ásamt nýrri drenlögn. Ný vatnsniðurföll voru sett á bílastæði við gangstétt og brunnum með dælum komið fyrir í gangstétt til uppdælingar úr niðurföllum við ruslageymslur. Öll gangstéttin framan við húsið var
síðan endurnýjuð og tröppur að forstofum endursteyptar. Þá var gerð sérstök drenlögn í garði sem tekur við jarðvatni frá brekkurótum/garðsvæði
Eignin er einstaklega vel staðsett, miðsvæðis, stutt í alla þjónustu, skóla, leikskóla og stutt inn á stofnæðar borgarinnar.
Nánari upplýsingar veitir Inga Reynis í síma 820-1903 eða á tölvupóstinum inga@gimli.is