Ragnhildur Finnbogadóttir, löggiltur fasteignasali & LIND Fasteignasala, kynna til sölu:
Fallega og bjarta tveggja herbergja íbúð á fimmtu hæð í fjölbýlishúsi, með svölum og fallegu útsýni til sjávar og fjalla.
Húsið er Sigvaldahús, teiknað af Sigvalda Thordarson arkitekt og stendur við Hverfisgötu 82, 101 Reykjavík.
-Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Ragnhildur Finnbogadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 772-2791 eða adda@fastlind.isSkráð stærð eignar skv. FMR er 52 fmEignin skiptist í:Forstofu, svefnherbergi, eldhús, stofu og baðherbergi.Nánari lýsing eignar:Anddyri: harðparket á gólfi, er í opnu rými með eldhúsi.
Eldhús: dökkgrá innrétting með svartri borðplötu og spanhelluborði. Í eldhúsi er snjall bakaraofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og ísskápur. Harðparket á gólfi.
Stofa: björt stofa með harðparketi á gólfi.
-Úr stofu er útgengt út á flísalagðar
svalir með
fallegu útsýni til sjávar.
Svefnherbergi: rúmgott, með fataskáp með rennihurðum og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: flísalagt hólf í gólf. Hvít innrétting með vaski og spegli fyrir ofan, sturtuklefi og salerni.
-Tengi er fyrir
þvottavél inni á baðherbergi.
Viðhald á vegum húsfélags og innan íbúðar:2022 - Múrviðgerðir, málun og þak yfirfarið.
2023 - Gluggaskipti í svefnherbergi. Skipt um eldhúsinnréttingu og eldhústæki. Rafmagn í eldhúsi yfirfarið. Brunaveggur settur upp í sameign í kjallara.
2024 - Svalagólf flísalagt.
2026 - Yfirstandandi framkvæmdir: Múrviðgerð í stigagangi og kjallararými. Stigagangur málaður og nýtt teppi lagt. Gólf flotað í kjallara.
Hverfisgata 82 er vel staðsett eign í hjarta miðborgar Reykjavíkur. Stutt er í alla helstu þjónustu, samgöngur og allt það sem miðborgin hefur uppá að bjóða.Allar nánari upplýsingar veitir:
Ragnhildur Finnbogadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 772-2791 eða adda@fastlind.is-----------------------------------------------------------------------Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.