DV logo
Fasteignaleitin
Opið hús:27. júlí kl 17:30-18:00
Skráð 22. júlí 2026

Þverholt 9

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
155.1 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
99.900.000 kr.
Fermetraverð
644.101 kr./m2
Brunabótamat
84.600.000 kr.
Byggt 1990
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20850121
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Esja Fasteignasala og Þóra Birgisdóttir Lggf. kynna frábærlega vel skipulagða 7 herb. íbúð á 3ju og efstu hæð miðsvæðis í Mosfellsbæ til sölu eða leigu. Við Þverholt 9, í nýlega uppgerðu húsi er þessi vel skipulagða og fjölskylduvæna eign laus til afhendingar.
Eignin er skráð 155,1 fm. skv. Fasteignaskrá HMS, íbúðin er þó töluvert stærri að gólfleti enda hluti efri hæðarinnar undir súð með góðri nýtingu.
Íbúðin skiptist í neðri hæð með 2 svefnherbergjum, eldhúsi, þvottahúsi, baðherbergi og tvískiptri stofu, efri hæð er með 3 svefnherbergi og sjónvarpsstofu. Geymsla, 2,8 fm. er við inngang í íbúðina.
Nánari lýsing; Komið er inn í forstofu/hol með góðum fataskápum.
Tvö svefnherbergi eru bæði með fataskápum.
Eldhúsið er rúmgott með hvítri innréttingu með miklu skápa- og bekkplássi, tengi fyrir uppþvottavél og góðan borðkrók.
Þvottahúsið / geymsla er inn af eldhúsinu, það er ca 6 fm. og nýtist vel bæði sem þvottaaðstaða og geymsla/búr.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með baðkari, hvítri innréttingu með handlaug og góðum speglaskáp.
Stofan er aflöng meðfram suðurhlið íbúðarinnar, þar eru upptekin loft með mikilli lofthæð með viðarklæðningu. Gengið er út á suðursvalir frá stofunni en hún snýr upp í holtið.
Á efri hæðinni eru 3 svefnherbergi;
Rúmgott hjónaherbergi með opnum fataskáp og tvö barnaherbergi með léttum skápum (ekki fastir - en fylgja).
Fyrir framan herbergin er rúmgott sjónvarpshol eða auka stofa.
Á íbúðinni er fallegt, gegnheilt eikarparket.
Geymsla, 2,8 fm. er staðsett á stigapalli við inngang að íbúðina, hún er með opnanlegum glugga.
Íbúðin er mikið til upprunaleg en vel um gengin. Sameiginleg vagna og hjólageymsla er á jarðhæð með aðgengi í skjóli undir skyggni til móts við innganginn.
Nýlega yfirstaðnar framkvæmdir á húsinu að utanverðu; Húsið málað, múrviðgert og skipt um gler að hluta og gluggar málaðir. Þá er stutt síðan þak var tekið í gegn og skipt um járn og pappa. 
Sameign er snyrtileg og vel hirt. Góða aðkoma er að húsinu með töluverðum fjölda bílastæða.
Allar fekari upplýsingar um eignina veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is

 


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Esja fasteignasala
www.esjafasteignasala.is

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Breiðavík 16
Hleðslustöð
Skoða eignina Breiðavík 16
Breiðavík 16
112 Reykjavík
90.2 m2
Fjölbýlishús
312
775 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Berjarimi 22
Efsta hæð
Opið hús:23. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Berjarimi 22
Berjarimi 22
112 Reykjavík
89.9 m2
Fjölbýlishús
312
778 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 5 íb. 603
Bílastæði
Efsta hæð
Baughamar 5 íb. 603
221 Hafnarfjörður
158.7 m2
Fjölbýlishús
423
885 þ.kr./m2
140.500.000 kr.
Skoða eignina Hulduholt 2a íbúð 103
Bílastæði
Hulduholt 2a íbúð 103
603 Akureyri
140.8 m2
Fjölbýlishús
423
850 þ.kr./m2
119.680.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin