Hrafnkell Pálmi lgf. kynnir þetta vel skipulagða fimm herbergja fjölskylduhús á þessum fallega stað. - Klætt að utan með bárujárni en aluzinc járn er á þaki
- Húsið stendur á stóru eignarlandi 12.800 fm.
- Húsið er byggt úr timbri árið 2020
- Mikið af gólfsíðum gluggum
- Gluggar eru úr furu
- Gólfhiti er í húsinu
Stutt er á Selfoss eða um 10 mínútna akstur.
Skólabíll sinnir svæðinu.
Nánari upplýsingar og bókaðu skoðun:
Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali / 690 8236 / hrafnkell@fastlind.isUm er að ræða samtals 151,9 fm. einbýlishús ásamt 33,6 fm. sambyggðum bílskúr, samtals 185,5 fm.
Að innan skiptist eignin í
fjögur svefnherbergi, stofu, eldhús, sjónvarpshol, baðherbergi, gestasnyrtingu, forstofu og þvottahús.Allar innréttingar hússins eru frá
Kvik.
Hiti er í gólfum hússins og hitastillar fyrir gólfhita eru komnir upp.
Varmadæla er í húsinu.
Ýmis smáfrágangur er eftir, meðal annars eftir að setja dúk í loft.
*ATH* Athygli er vakin á því að á þeim myndum þar sem loftið er klætt eru gerðar með gervigreind*Nánari lýsing:Forstofan er flísalögð og góður fataskápur.
Eldhúsið er með harðparket á gólfi. Hvít innrétting með eyju og góðu skápaplássi.
Stofan er björt og rúmgóð með harðparketi á gólfi. Útgengt er úr stofu á verönd til suðurs.
Sjónvarpsholið er með harðparket á gólfi.
Fjögur svefnherbergi eru í húsinu, öll með harðparketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergið er flísalagt gólf, hvít innrétting, upphengt wc og walk-in sturta. Flísaplötur eru á veggjum.
Gestasnyrtingin er með flísalagt gólf. Þar er upphengt wc og innrétting með vaski. Flísaplötur eru á veggjum.
Þvottahúsið er með flísalagt gólf og þar er hvít innrétting með tækjum í vinnuhæð.
Bílskúrinn er 33,6 fm að stærð. Innkeyrsluhurð er álflekahurð. Skúrinn er einangraður og klæddur en ómálaður.
Lóðin er 12.800 fm. eignarlóð og er hún gróin.
Rimar 5, 803 Selfoss, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 234-7067 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Rimar 5 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 234-7067, birt stærð 185.5 fm.
Nánari upplýsingar veitir Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali, í síma 690 8236, tölvupóstur hrafnkell@fastlind.is.-----------------------------------------------------------------------Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.