HÚSASKJÓL KYNNIR:
EIGNIN ER KOMIN AFTUR Á SÖLU - (FÉLL Á FYRIRVARA)
Böðvar Reynisson löggiltur fasteignasali veitir allar upplýsingar í síma 766-8484 eða bodvar@husaskjol.is
Eignin er laus við kaupsamning.
Einstaklega falleg og björt íbúð á 3. hæð, sem er hönnuð í anda "New York loft style" í hjarta miðborgarinnar með stórbrotnu útsýni yfir Reykjavíkurhöfn, hafið og fjöllin ásamt allri þeirri þjónustu og afþreyingu sem miðborgin hefur upp á að bjóða í göngufjarlægð. Eignin er í vönduðu lyftuhúsi, byggðu 2017, og er eignin öll hönnuð með hliðsjón af miklum gæðum, þægindum og glæsileika. Mikið er lagt upp úr hljóðeinangrun í húsinu, jafnt gagnvart hljóðum utanhúss sem og milli hæða og íbúða. Aukin lofthæð. Hjólastólaaðgengi er í allar íbúðir og sameignarrými hússins. Íbúar geta sótt um íbúakort bílastæðasjóðs.
Skipting eignar:
Alrými sem samanstendur af stofu/borðstofu/eldhúsi forstofugangi og yfir í opið svefnherbergi. Baðherbergi, þvottahúsi, gestasalerni, rúmgóðum suðursvölum og geymslu í kjallara.
Sameign:
Inngangar í húsið eru frá Tryggvagötu og Geirsgötu og lyklalaust aðgengi er í sameign og í íbúðir. Einstaklega glæsileg sameign, með marmara á gólfum á jarðhæð og sjónsteypu ásamt listaverkum eftir Leif Breiðfjörð. Tveir stigagangar eru í húsinu með lyftum og stigahúsum með hljóðdempandi teppi, sjónsteypu og glerhandriðum. Dagnotkunar hjóla og vagnageymsla er á jarðhæð og langtíma hjóla og vagnageymsla í kjallara.
Íbúð:
Vandað eikarparket er á öllum gólfum að undanskildum votrýmum þar sem eru vandaðar flísar. Eldhústæki frá AEG, Kludi blöndunartæki og postulín úr þríbökuðu Laufen. Hiti er í öllum gólfum. Innréttingar frá HTH. Free@home stýrikerfi ffyrir ljós og myndavéladyrasíma. Snertilaust lyklaaðgengi í allar íbúð, sameignarrými og útihurðir. Sjónsteypa á öðrum langvegg íbúðarinnar.
Forstofuhol/gangur sem liggur frá norður til suðurs og tengir saman alrými, stofu, borðstofu, eldhús og svefnherbergi. Gott skápapláss.
Alrými:
Eldhús með góðu skápaplássi, eyju og vinnuaðstöðu. Spanhelluborð, innfelldur ofn, innbyggð uppþvottavél og ísskápur.
Stofur, rúmgott rými með stórbrotnu útsýni í norður.
Svefnherbergi með gengt út á rúmgóðar suðursvalir. Inn af svefnherberginu er fataherbergi og baðherbergi.
Baðherbergi, flísalagt með hvítri innréttingu og handlaug yfir innréttingu, sturtu og innfelldum blöndunartækjum. Hvítar flísar á veggjum.
Gestasalerni, með salerni, hvítri innréttingu og handlaug yfir salerni.
Þvottaús með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, skáp og vinnuborði með handlaug.
Sérgeymsla er í kjallara.
Einstaklega falleg eign á þessum frábæra stað með allri þeirri þjónustu og afþreyingu sem miðborgin hefur upp á að bjóða, í göngufjarlægð. Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Ertu í fasteignahugleiðingum erlendis? Húsaskjól er meðlimur í Leading Real Estate Companies of the World
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði