Berg fasteignasala kynnir:59,9 fm. tveggja herb. íbúð á 2. hæð í 3ja. hæða fjölbýli við Hraunbæ 196 í Reykjavík.Komið er í
anddyri með eikarparketi. Til vinstri er
stofa með útgengi á svalir í vestur. Eikarparket á gólfi. Opið í
eldhús með nýlegri eldhúsinnréttingu og eldhústækjum. Span eldavélarborð. Snyrtilegur frágangur.
Rúmgott svefnherbergi með eikarparketi og fataskápum.
Baðherbergið er flísalagt með sturtuklefa .
Sér geymsla fylgir eigninni í kjallara. Þar er einnig
sameiginlegt þvottahús með flísum á gólfi.
Sameiginleg hjólageymsla, einnig með flísum. Sameiginlegur og mjög snyrtilegur garður, með trjám og runnum. Leiktæki fyrir börnin og fallegar grasflatir. Hiti er í stéttum. Framan við húsið
eru næg bílastæði og góð aðkoma að húsinu. Rólegt og friðsælt hverfi.
Allar nánari uppl. hjá Pétri s. 897-0047 eða petur @berg.is