100 FM SÉRAFNOTAGARÐUR MEÐ UPPHITAÐRI HELLULÖGN - Mikið endurnýjað að innan sem utanBaldur fasteignasali – Beinn sími 450-0000 kynnir: Í einkasölu rúmgóða og bjarta 3ja herbergja íbúð á jarðhæð við Jöklafold 43 í Foldahverfi, 112 Reykjavík.
Íbúðinni fylgir uþb. 100 fermetra sérafnotaréttur af garði, og er útgengt beint úr stofu út í garðinn. Hluti garðsins er hellulagður með hita undir hellum.
Hægt er að bæta þriðja herberginu við í stofu. Húsið fór í umfangsmiklar framkvæmdir árið 2025. Það var múrviðgert og málað, þakkantur var endurnýjaður og skipt var um glugga þar sem þörf var á.
Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 106,2 fermetrar, þar af er sérgeymsla 8,5 fermetrar.
Smelltu hér til að sækja kynningarbækling með söluyfirliti, teikningu, yfirlýsingu húsfélags ofl.Aðal sölupunktar:- Um 100 fm
sérafnotaréttur af garði með útgengi úr stofu
-
Hellulögð verönd með hitalögn undir hellum
-
Upphituð stétt við inngang og tunnugeymslu
- Möguleiki á
þriðja herberginu samkvæmt teikningu
- Eldhús með
ofn og combiofn, innbyggðri uppþvottavél og borðkróki
- Mjög
gott skápapláss- Baðherbergi með
bæði baðkari og sturtuklefa- 8,5 fermetra
sérgeymsla með glugga á sömu hæð og íbúðin
- Miklum framkvæmdum á húsinu lokið árið 2025
-
Barnvænt hverfi, stutt í Foldaskóla, leikskóla, Grafarvogslaug og Egilshöll
Íbúðin skiptist í forstofu/hol, eldhús, stofu/borðstofu, hjónaherbergi, svefnherbergi, svefnherbergisgang og baðherbergi. Henni fylgir einnig sérgeymsla, sérafnotaréttur af garði og hlutdeild í sameiginlegu þurrkherbergi og hjóla- og vagnageymslu.
Nánari lýsing:Forstofa / hol: Rúmgott hol með mjög góðu skápaplássi. Forstofuskápar tengjast eldhúsi. Parket á gólfi.
Eldhús: Góð eldhúsinnrétting með tveimur ofnum og innbyggðri uppþvottavél. Rúmgóður borðkrókur.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð stofa og borðstofa í samliggjandi rými með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt á hellulagða verönd með hitalögn og þaðan út í uþb. 100 fermetra garð sem er sérafnotareitur íbúðarinnar. Hluti stofunnar var áður svefnherbergi og hægt að stúka af herbergi aftur.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Svefnherbergi: Parket á gólfi.
Svefnherbergisgangur: Gott skápapláss og parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Baðkar og sérsturtuklefi, góð innrétting, handklæðaofn og tengi fyrir þvottavél. Pípari hefur endurnýjað blöndunartæki í sturtu og baði.
Geymsla: 8,5 fermetra sérgeymsla með glugga á sömu hæð og íbúðin. Hún nýtist mjög vel.
Sameign: Þurrkherbergi er á hæð íbúðarinnar og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Sameignin var máluð og teppalögð árið 2018. Upphituð stétt er við inngang og tunnugeymslu.
Lóð: Afgirt lóð með sameiginlegu leiksvæði og leiktækjum aftan við hús.
Framkvæmdir á húsinu árið 2025 (unnin var ástandsskýrsla áður en farið var í framkvæmdir):
Ytra byrði lagfært, múrviðgert og húsið málað
Þakkantur endurnýjaður að framan og yfirfarinn
Nýtt þakjárn og þakkantur á anddyri
Skipt um glugga í sameign og í sérgeymslu íbúðarinnar
Skipt um tvo glugga í íbúðinni, aðrir gluggar yfirfarnir og endurmálaðir
Skipt um hurðir á hjóla- og sorpgeymslu
Skipt um niðurfallsrör
Húsið: Jöklafold 43 er fjögurra hæða steinsteypt fjölbýlishús byggt árið 1988, með sjö íbúðum og innst í botnlanga.
Staðsetning: Foldahverfi er gróið og barnvænt hverfi. Leikskólinn Sunnufold er í næsta nágrenni og Foldaskóli í göngufæri. Stutt er í Grafarvogslaug, íþróttasvæði Fjölnis, Egilshöll og þjónustukjarnana í Hverafold og Spönginni. Fallegar göngu- og hjólaleiðir liggja um hverfið og meðfram voginum.
Björt og rúmgóð eign með stórum sérafnotagarði, möguleika á fjórða herberginu og nýlegum framkvæmdum á húsinu. Hún hentar sérstaklega vel fyrir fjölskyldur og þá sem vilja garð án þess að fara í sérbýli.Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski, löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000Skoða meðmæli -
Verðmat fasteigna -
Lúxus fasteignir -
Greiðslumat.is -
Nýtt: Kaupenda námskeið