Fasteignaleitin
Skráð 9. júlí 2025
Deila eign
Deila

Grensásvegur 1F 703

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
143.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
191.900.000 kr.
Fermetraverð
1.336.351 kr./m2
Fasteignamat
96.400.000 kr.
Brunabótamat
89.000.000 kr.
JS
Jórunn Skúladóttir
Lögg. fasteignasali
Byggt 2025
Þvottahús
Lyfta
Garður
Útsýni
Aðgengi fatl.
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2522222
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
7
Hæðir í húsi
7
Númer íbúðar
3
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
suð-austur svalir
Upphitun
gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
8 - Í notkun
Háborg fasteignasala ehf og Jórunn lögg.fasteignasali kynna Grensásvegur 1F, nýbygging í lyftuhúsi með bílakjallara. Glæsilega eign á 7.hæð, stærð 143,6 fm, á efstu hæð í 108 Reykjavík, 4ra herbergja. Íbúðin er með svölum eftir endilangri íbúðinni að stærð 25,5 fm. Útgengt út á svalir úr hjónaherbergi og stofu. Geymsla fylgir eigninni 12,4 fm að stærð við inngang á íbúðinni. Bílakjallari á 3.hæðum, hægt er að velja um fleiri en eina áskriftarleið eftir viðveru. Einnig möguleiki á skammtímaleigu.

Helstu kostir lúxus íbúðar eru:
  • Íbúðin er upphituð með gólfhita (hitastýring í íbúðunum),
  • Gólfsíðir gluggar í íbúðinni
  • Íbúðin glæsilega innréttuð með dökkum eikar lituðum forstofuskápum
  • Eldhúsinnréttingin er með dökk eikar lituð með hvítum skápum
  • Inngangshurð yfirfelld 260 cm hæð, innihurðir í 220 cm
  • Stærstur hluti innveggja Hemga léttsteypusteinum
  • Íbúðin skilast fullbúin með gólfefnum, parketi á gólfum Aroma D3882 10mm/1380/193
  • Bað og þvottaherbergjum eru gólf flísalögð með dökkum Amani Matt flísum 60x120cm
  • Innfeld lýsing/ljós í loftum í stofum, eldhúsi, böðum og forstofu
  • Innfelld blöndunartæki á baði og innfeld lýsing bak við spegil og í lofti
  • Neysluvatnið með forhitara frágengið og tengt blöndunartækjum
  • Laus strax
PANTIÐ SKOÐUN, erum til húsa að Grensásvegi 1. Sýnum með stuttum fyrirvara, Jórunn lögg.fasteignasali jorunn@haborg.is eða síma 845-8958

Nánar um íbúðina: þegar komið er inn í íbúðina er góður forstofuskápur. Á hægri hönd er baðherbergi með góðri snyrtiaðstöðu, innbyggðum blöndunartækjum sturta og handlaug með skúffum undir og spegill fyrir ofan. Úr forstofu er komið inn í hol en þar blasir við glæsilegt alrými eldhús með eyju sem hægt er að sitja við og glæsilegar rúmgóðar bjartar stofur með útgengi á svalir 25,5 fm. Sér þvottahús innan íbúðar með góðri vinnuaðstöðu innaf eldhúsi. Hjónasvíta með gólfsíðum gluggum, fataherbergi og glæsilegu baðherbergi með sturtu og góðri snyrtiaðstöðu. Einnig eru 2. barnaherbergi með gólfsíðum gluggum og fataskápum. Eigninni fylgir geymsla sem gengið er inn í við hliðina á inngangshurðinni. Geymslan er 12,4 fm. Aðgengi að bílakjallara á 3.hæðum.  

Húsið Grensásvegur 1: er nýbygging og samanstendur af 5. stigahúsum rúmlega 180 íbúð, ásamt verslunarhúsnæði á 1.hæð. Í stigagangi G1F eru 42. íbúðir. Bílakjallari á 3.hæðum sem nýtist öllum íbúðum ef vill, gegn vægu gjaldi. Kostnaður á hverja klukkustund virka daga er kr 250- frá kl 8:00-18:00, á virkum dögum er kr 150-. frá kl 18:00-8:00. Helgar er kr 120- á klukkustund. Sjá má á www.parka.is nánari upplýsingar um áskriftir.

Húsfélag: Í húsinu er starfrækt húsfélag, það er rekstrarfélag sem sér um udanumhalið. Ekki eru fyrirhugaðar eða yfirstandandi framkvæmdir á vegum húsfélags.

Um er að ræða glæsilega íbúð með þaksvölum stærð 25,5 fm með útsýni, gott birtuflæði, gólfhita, aukin lofthæð, loftgæði góð, innbyggð lýsing og afhendist fullbúin með gólfefnum. Einstök staðsetning miðsvæðis þar sem stutt er í alla þjónustu og menningu.

Deilibílar. Stefnt er að því að deilibílar verði hluti af nýtískulegu og vistvænu umhverfi á Grensásvegi 1. Þeir verða aðgengilegir fyrir íbúa og starfsfólk fyrirtækja á lóðinni. Fyrirkomulag liggur ekki endanlega fyrir, en markmiðið er leigufyrirkomulag þar sem einfalt app verður notað fyrir aðgengi að bílunum og mögulegir notendur líklega forskráðir.

Lóðin: falleg hönnun á lóðinni þar sem fallegur garður og gott aðgengi fyrir alla er til að njóta saman. Snjóbræðsla undir helstu göngustígum. 

Nánari upplýsingar veitir Jórunn Skúladóttir Lögg. fasteignasali, í síma 845-8958, eða tölvupóstur jorunn@haborg.is. 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grensásvegur 1D 501
Grensásvegur 1D 501
108 Reykjavík
160.2 m2
Fjölbýlishús
423
1180 þ.kr./m2
189.000.000 kr.
Skoða eignina Orkureitur - D1-606
Orkureitur - D1-606
108 Reykjavík
140.9 m2
Fjölbýlishús
422
1241 þ.kr./m2
174.900.000 kr.
Skoða eignina Grensásvegur 1 F íb.703
Grensásvegur 1 F íb.703
108 Reykjavík
143.6 m2
Fjölbýlishús
43
1336 þ.kr./m2
191.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin V3 íb 501
Bílastæði
Vesturvin V3 íb 501
101 Reykjavík
141 m2
Fjölbýlishús
312
1489 þ.kr./m2
210.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin