Helgafell fasteignasala kynnir til sölu - þriggja herbergja horníbúð með svölum á fyrstu hæð merkt 0116 í nýbyggingu ásamt stæði í lokaðri bílageymslu við Austurbrú 18, Akureyri.Arkitektar: THG arkitektar
Verktaki: JE Skjanni ehf.Skoða heimasíðu verkefnisins við PollinnÍbúðin er samtals 81,9fm., þar af er geymsla 6,1fm.Íbúðin:Komið er inn í opið anddyri með skáp á hægri hönd.
Opið eldhús, eldhúseyja með kvarts stein og span helluborði. Skúffur og skápar í eldhúsinu eru allar með ljúflokum. Eldhúsinnrétting með kvarts stein, bakaraofn, innfelldur vaskur. Allar skúffur og skápar með ljúflokum. Innfelld lýsing frá Lumex.
Fyrir framan eldhúseyjuna er
stofa/borðstofa, útgengt út á
svalir til suðausturs með glæsilegu útsýni yfir pollinn.
Hjónaherbergi með góðum skáp.
Barnaherbergi með skáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Sturta með glerskili. Falleg innrétting frá Parka, kvarts steinn á borðplötu. Upphengt salerni. Skápur fyrir þvottavél og þurrkara, borðplata úr kvarts stein.
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir íbúðinni.
Allar innréttingar, innihurðir, skápar og Electrolux eldhústæki eru frá Parka. Blöndunar- og hreinlætistæki eru frá Tengi.Íbúðinni er skilað fullbúinni en án gólfefna.Sameign er með glæsilegra móti.
Komið er inn í rúmgott anddyri. Stórar ljósakrónur og lýsing frá Lumex gefa fallega birtu.
Flísar á gólfi frá kjallara og upp á pall fyrstu hæðar. Frá fyrstu hæð eru stigagangarnir teppalagðir.
Innangengt úr hverjum stigagangi niður í lokaða bílageymslu og þaðan inn á
hótelið sem verður opnað 2026.Inngangur um bílageymslu í hótelið er einungis fyrir íbúðareigendur og hótelgesti.
Eigninni er skilað skv. skilalýsingu verktaka.Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það leggst á eignina.ATH: myndir af íbúðinni eru af svipaðri íbúð.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:Sölumenn Helgafells fasteignasölu
Sími: 566 0000