Domusnova fasteignasala hefur fengið í einkasölu góða 3ja herbergja íbúð með svölum á 3ju hæð að Hátúni 4. Íbúðin er með eldhúsi og stofu í sameiginlegu rými og tveimur herbergjum, auk baðherbergis og geymslu á hæðinni. Stutt er í alla þjónustu í miðbænum og Nóatúni, íþróttasvæði Laugardalsins innan seilingar. Stutt er í skóla og leikskóla og góða aðkoma að stofnbrautum, Sæbraut og Miklubraut. Næsta árs fasteignamat er kr. 62.750.000.Eldhús og
stofa eru í einu rými með flísum á gólfi, ágæt eldhúsinnrétting. Útgengt er úr stofu á svalir sem snúa í norðvestur.
Baðherbergið er fremur lítið, sturtuklefi.
Hol er með flísum á gólfi og er lítill geymsluskápur þar.
Tvö herbergi, bæði með góðu skápaplássi.
Ofnar eru upprunalegir pottofnar. Skipt hefur verið um glugga á austurhlið en ekki norður og vesturhlið.
Í sameign er sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi með þvottavél og þurrkara í eigu húsfélagsins með sjáfsalafyrirkomulagi. Hjóla- og vagnageymsla auk lítillar sérgeymslu í sameign merkt 2A.
Væntanlegir kaupendur hvattir til að skoða eignina vel áður en tilboð er gert í samræmi við skoðunarskyldu kaupenda.
Smellið hér til að fá söluyfirlitNánari upplýsingar veita:Árni Helgason löggiltur fasteignasali / s.663 4290 / arni@domusnova.isSkrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.