Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:
Vatnsnesvegur 13, 230 ReykjanesbærÍbúð á efri hæð með bílskúr, tveimur svölum og sérafmörkuðu lóðarfleti. Skipulagið er hagnýtt með eldhúsi, stofu með útgengi á svalir, rúmgóðu holi, tveimur svefnherbergjum og baðherbergi. Á jarðhæð er sér þvottahús/geymsla og bílskúr með rafmagnsopnun.
Smelltu hér til að bóka skoðun
Smelltu hér til að fá söluyfirlitSamkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 144.1 m², þar af er íbúðarrými 101,2 m², bílskúr 31,4 m² og geymsla/hitav. á jarðhæð 11,5 m². Eign merkt 01-01, fastanúmer 209-1105 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa með flísalagt gólf og fataskáp.
Eldhús er rúmgott með flísum á gólfi, fallegri innréttingu með góðu skúffu- og skápaplássi. Bakaraofn í vinnuhæð.
Stofa með nýlegu harðparketi. Útgengi á svalir.
Hol er rúmgott með nýlegu harðparketi. Lúga úr holi upp á
ris, gott geymslupláss.
Hjónaherbergi með viðarparketi og fataskáp, útgengi á aðrar svalir.
Svefnherbergi með viðarparketi.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, sturta, salerni, handklæðaofn og innrétting með skúffum. Endurnýjað 2021.
Geymsla/þvottahús á jarðhæð hússins með máluðu gólfi.
Bílskúr er 31,4 m² að stærð. Málað gólf og rafmagnsopnari á hurð. Upprunalegur pottofn.
Verönd er afgirt og tyrfð að mestu. Sólpallur við bílskúr.
Byggingarlýsing:Húsið er staðsteypt, byggt árið 1941. Upprunalegir timbur gluggar. Þak er valmaþak með aluzink klæðningu. Húsið er einangrað að innan. Bílskúr er úr timbri klæddur með báruklæðningu, byggður árið 1950.
Lóð og aðkoma:Lóð skipt samkvæmt viðauka við eignaskiptayfirlýsingu í A- og B-fleti. B-flötur tilheyrir efri hæð og er 120 m². Innkeyrsla að bílskúr er hellulögð. Frá bilskúr er útgengt á sólpall, á lóð er einnig geymsluskúr, að öðruleiti er lóð tyrfð.
Framkvæmdir að sögn seljenda:2025 - Skipt um kili að hluta til og ofnalagnir endurnýjaðar.
2022 - Hús málað að utan.
2021 - Baðherbergi endurnýjað. Flísar endurnýjaðar, öll baðtæki (blöndunartæki, sturta, klósett, vaskinnrétting og handklæðaofn).
2020 - Neysluvatnslagnir endurnýjaðar.
Samþykktir uppdrættir eru ekki í samræmi við innra skipulag hússins í dag.Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.isErtu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.Valný fasteignasala | www.valny.is | Tjarnargötu 2, 230 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00