VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu íbúð á jarðhæð í tvíbýli við Bröttuhlíð 5, 810 Hveragerði.
Eignin er samtals 93,2 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Eignin telur forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, þvottahús og þrjú svefnherbergi.
Timburverönd fyrir framan hús og útgengt á baklóð frá þvottahúsi.
Eignin er í skjólgóðu og grónu hverfi, miðsvæðis í Hveragerði.Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is. Nánari lýsing:
Forstofa er parketlögð en án fataskáps.
Stofa er parketlögð. Gluggar til suðurs.
Eldhús með nýlegri innréttingu, góðu skúffuplássi, bakarofn í vinnuhæð og gert ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu.
Baðherbergi er flísalagt. Innrétting með handlaug og skápaplássi, vegghengt wc og "walk-in" sturta.
Svefnherbergin eru þrjú. Parket á gólfi.
Þvottahús með nýlegri innréttingu. Gott skápapláss og skolvaskur. Gert ráð fyrir þvottavél í innréttingu.
Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma
861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma
823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.