STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Virkilega fallega og bjarta 93,2 fm 4ra herbergja íbúð á 3. hæð í snyrtilegu fjölbýli með miklu óhindruðu útsýni í átt að sjó, Bessastöðum og Keili. Eignin hefur fengið mikið viðhald á undanförnum misserum og er algjörlega endurnýjuð. Íbúðin er með heildargólfefni án þröskulda, vandað viðarparket frá Álfaborg Grace oak white canvas plank.
Baðherbergið er flísalagt með ítölskum marazzi flísum frá Harðviðarval. Baðherbergið er allt endurnýjað. Innfeld blöndunartæki í walk in sturtu og með upphengdu wc. Íbúðinni fylgir eitt bílastæði ásamt 12,5 fm lokaðri bílageymslu sem nýtist sem geymsla í dag svo eru alltaf næg bílastæði. Íbúðin er með nýju rafmagni og eru dimmerar á flestum rofum. Rafmagnstaflan endurnýjuð.
Tengi grind fyrir miðstöð er endurnýjuð með hita skynjurum fyrir stýringu hita í rýmum íbúðar. Einnig eru nýjir milliveggir, innihurðir og fataskápar.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala. 690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.isForstofa er með parketi á gólfi og sérsniðinni ullarmottu.
Hol/gangur er með parketi á gólfi og góðum skápum.
Stofa er með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á suðursvalir.
Eldhús er meðparketi á gólfi, nýrri eldhúsinnrétting með hnotu frontum og hliðum sem var sérpantað frá Haf-store, stein plötur frá S Helgasyni, niðurfellt span helluborð og ofn frá AEG, vaskur er undirlímdur.
Svefnherbergin eru þrjú og eru með parketi á gólfi og skápar í aðalsvefnherbergi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, opin sturta, upphengt wc, vaskur og gluggi með opnanlegt fag.
Þvottahús er í sameign á jarðhæð.
Geymsla er í sameign á jarðhæð ásamt hálfur bílskúr.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Bílageymsla lokaður hálfur bílskúr sem nýtist sem geymsla.