Fallegt og mikið endurnýjað einbýli við Möðruvallastræti á Akureyri. Eignin skiptist í tvær hæðir og kjallara og hefur á síðustu 25 árum nánast allt verið tekið í gegn sem og lóðin í kring. Húsið er samtals skráð 202,4 m² og var upphaflega byggt árið 1938 í fönkís stíl sem hæð og kjallari en árið 1958 var byggt ofan á húsið í modernískum stíl, sem setur skemmtilegan svip á húsið. Húsið er vel staðsett á suður-brekkunni í þægilegu göngufæri frá sundlauginni og miðbænum.
Húsið skiptist þannig að á aðalhæð er forstofa, eldhús, borðstofa, stofa og baðhergi. Á efri hæð eru fjögur herbergi og baðherbergi. Í kjallara er þvottahús og tæknirými, forstofa, geymsla, eitt herbergi með eldhúskrók og baðherbergi innaf / studio. Lóðin er sérstaklega skemmtileg. Sunnan við húsið er hellulagt bílaplan með snjóbræðslu í og einnig er hellulagt við aðalinnganginn í húsið og upp með norðurhlið þess og þar er jafnframt snjóbræðsla (lokað kerfi). Sunnan við húsið er timburverönd sem nær einnig vestur fyrir húsið og þar er heitur pottur, gufubað, útisturta og góður geymsluskúr og geymslurými.
Forstofa / aðalinngur er frá Möðruvallastrætinu við norðurhlið hússins. Forstofan er með harðparketi á gólfi. Góðir fataskápar eru á gangi innan við forstofuna. Einnig inngangur beint inn í kjallarann á vesturhlið. Eldhúsið er með harðparketi á gólfi og vandaðri sérsmíðaðri innréttingu úr spónlagðri hnotu og ljóstum kvartssteini á bekkjum. Eldavél er stór gaseldavél með 7 hellum. Borðstofa og stofa eru innaf eldhúsi og þar er harðparket á gólfum en hægt er að loka á milli borðstofu og stofu með rennihurð. Úr stofunni er tvöföld hurð til suðurs út á verönd. Baðherbergin í húsinu er þrjú, eitt á hverri hæð og hafa þau öll verið endurnýjuð á síðustu 25 árum, öll flísalögð, tvö með sturtu og eitt með baðkari. Opnanlegir gluggar eru á þeim öllum og snyrtilegar innréttingar. Herbergin eru fjögur á efri hæðinni á þeim öllum er parket og fataskápar eru í þremur þeirra. Herbergið/studio íbúð í kjallaranum er með harðparketi og innaf því er eldhúskrókur og baðherbergi - hentar vel til útleigu. Þvottahús og tæknirými er í kjallara og þar eru flísar á gólfi og ljós innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Geymslur eru þrjár innan íbúðar, allar undir stiga/tröppum. Geymsluskúr og frekara geymslupláss er í garðinum. Svalir eru til norðurs út af gangi efri hæðar og þaðan er skemmtilegt útsýni.
Annað - Ljósleiðari er kominn inn og tengur. - Gólfhiti er í allri aðalhæð sem og í kjallara. - Allar innréttingar er frá Hyrnu (í dag Húsheild Hyrna) - Stærri og sérhæfðari framkvæmdir við húsið hafa verið unnar af fagmönnum. - Góðir útleigumöguleikar eru í kjallaranum - Menntaskólinn á Akureyri er aðeins steinsnar frá.
Töluverðar endurbætur hafa verið gerðar á húsinu af núverandi eigendum og hér fylgir upptalning frá seljanda.
2000–2004 – efri hæð og stofa Á fyrstu árum eftir kaup var opnað út úr stofu og útbúinn sólpallur sunnan við húsið. Efsta hæð hússins var tekin í gegn á þessu tímabili, meðal annars með endurnýjun hurða, gólfefna og fataskápa. 2002 – gufubað og geymsluskúr Gufubað var útbúið og geymsluskúr reistur við húsið. 2003 – gluggar og klæðning á efri hæð Skipt var um alla glugga á efri hæð. Framhlið efri hæðar var jafnframt endurnýjuð og klædd með sedrusviðarklæðningu. Um 2004 – rafmagnstafla endurnýjuð. 2005 – pallur gerður vestan við húsið. 2005 - jarðvegsskipti og dren við vesturhlið Skipt var um jarðveg meðfram vesturhlið hússins og drenað við vesturhlið kjallarans til að bæta frárennsli frá húsinu. 2006 – eldhús og innréttingar Eldhús var endurnýjað ásamt skápum og innréttingum í gangi. 2007 – heitum potti var komið fyrir við húsið. 2008 – efri hæð Svalir á efri hæð voru fjarlægðar og herbergi á hæðinni stækkað. Baðherbergi á hæðinni var jafnframt endurnýjað. 2011 – baðherbergi á miðhæð var endurnýjað. 2015 – útieldhús útbúið sunnan við húsið með pizzuofni. 2016 – skipt var um glugga í kjallara hússins. 2019 – miðhæð, kjallari og fráveitulagnir Gólfhiti var settur á miðhæð og gólfefni endurnýjuð. Kjallarinn var tekinn í gegn og þar útbúin stúdíóíbúð með salerni og sturtuaðstöðu. Gólfhiti var settur í kjallarann og þvottahús og geymslur flísalagðar. Rafmagnstafla hússins var jafnframt færð á þessum tíma. Skólplagnir innanhúss voru endurnýjaðar og lagnir endurnýjaðar út fyrir lóðarmörk. 2020 – vatnslagnir Skipt var út öllum koparlögnum í húsinu og lagnakerfið endurnýjað. 2022 – þak, klæðning og svalir Ráðist var í umfangsmiklar endurbætur á þaki og ytra byrði hússins. Skipt var um alla timburklæðningu á þakinu, þakpappi endurnýjaður og ný einangrun sett. Loftun þaksins var aukin og nýr þakkantur útbúinn. Klæðning á efri hæð hússins var endurnýjuð með viðhaldsfrírri utanhússklæðningu. Samhliða framkvæmdunum var farið yfir undirliggjandi timbur og skipt um það sem þurfti, þar á meðal allt timbur á norðurhlið hússins. Nýjar svalir voru byggðar á norðurhlið hússins og lýsing sett í nýjan þakkant. 2023 – bílaplan og gangvegur Bílaplan og gangvegur við húsið voru gerð. Hitalögn í lokuðu kerfi var lögð undir bílaplan og gangveg. 2026 – hitaveitugrind, lagnir og stýring á heitum potti Hitaveitugrind hússins var endurnýjuð og lagnir tengdar henni endurnýjaðar. Stýring fyrir heita pottinn var jafnframt endurnýjuð og sett upp appstýring sem gerir kleift að stjórna pottinum með síma. Eins var sett upp Shelly hússtjórnarkerfi í húsið.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
minniháttar ummerki um raka í vegg á baðherbergi í kjallara. * Eignin er ekki að fullu í samræmi við teikningar í kjallara.
Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.