Guðrún Antonsdóttir fasteignasali og LIND Fasteignasala kynna sérlega fallega nýja 3ja til 4ra herbergja fullbúna íbúð laus til afhendingar strax. Eignin er með svölum til suðurs og bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi. Aukin lofthæð 280 cm, gólfsíðir Velfac gluggar, vandaðar innréttingar frá JKE design, ljósahönnun frá Lumex, Miele bakaraofn og helluborð. Innbyggður ísskapur með frysti og uppþvóttavél. Quartz borðplötur í eldhúsi og á baði. Harðparket frá Byko. HÆGT ER AÐ SKOÐA MEÐ STUTTUM FYRIRVARA ALLA DAGA. Smyrilshlíð 9, íbúð 0203. Þriggja herbergja 97,3 fm íbúð á annari hæð, þar af geymsla 7,4 fm og bílastæði (merkt:B59). 5,4 fm svalir í suður. Auðvelt er að setja upp vegg frá stofu og setja upp þriðja herbergið
Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, S:820-9322, pall@fastlind.isEignin er björt og opin. Eldhúsið er með dökkri innréttingu og nær upp í loft, Quartz borðplata á innréttingu og eyju. Bakaraofn og helluborð frá Miele. Samliggjandi eldhúsi er borðstofa og stofa, þaðan er gengið er út á svalir með flísum.
Tvö rúmgóð svefnherbergi með skápum. Stórt baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara bak við hurð. Blöndunartæki frá Tengi.
Íbúðinni fylgir sér bílastæði merkt B59 í bílakjallara hússins. Búið er að leggja grunn fyrir hraðhleðslustöð.
LÝSING:HÖNNUÐIR: Húsin eru hönnuð af Alark Arkitektum og innanhúshönnun er af M/Studio Reykjavík. Mikill fjölbreytileiki er bæði á ytra útliti húsinss og í gerðum og stærðum á íbúðum. Mikið var lagt upp úr gæða efnisvali og góðum lausnum.
HÚSIÐ: Húsið er klætt að utan með álklæðningu og því viðhaldslítið. Gluggarnir eru vandaðir danskir ál-tré gluggar frá Velfac sem hafa það einkenni að vera með hátt einangrunargildi fyrir hita og hljóði.
BÍLAKJALLARINN, BÍLSKÚRAR OG GEYMSLUR: Bílastæði fylgir öllum íbúðum og góðar geymslur. Talsvert er af bílskúrum sem fylgja stærri íbúðum.
SAMEIGINLEGUR GARÐUR: Einstaklega fallegur og skjólgóður. Gróður og hellulagðir/steyptir gangstígar sem að hluta til eru með snjóbræðslu ásamt lýsingu. Bekkir og leiksvæði með leiktækjum og mjúku undirlagi.
AFHENDING: við kaupsamning
Allir Kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar, með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 8 samstarfsaðilum, m.a.: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Ísleifur Jónsson, Parki, Betra bak og Dorma.
Myndir er af samskonar eign með sama skipulagi en það er ekki gluggi á baðherbergi né svalahurð frá eldhúsi
Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, S:820-9322, pall@fastlind.isGuðrún Antonsdóttir fasteignasala í tölvupóst gudrun@fastlind.is