Fasteignaleitin
Skráð 26. apríl 2024
Deila eign
Deila

Jöfursbás 5D - íb. 501

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
123.7 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
115.900.000 kr.
Fermetraverð
936.944 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Byggt 2024
Þvottahús
Lyfta
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2530345_11
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
5
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
austursvalir
Lóð
1,82
Upphitun
Danfoss sameiginlegur
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
6 - Fullgerð án lóðarfrágangs
Matsstig
6 - Fullgerð án lóðarfrágangs
Kvöð / kvaðir
Ákveðnir starfsmenn fasteignasölunnar eru óbeinir hluthafar í félaginu sem selur.
 DOMUSNOVA KYNNIR * NÝJAR ÍBÚÐIR VIÐ HAFIÐ *** NÝR ÁFANGI KOMINN Í SÖLU 

Jöfursbás 5D, Reykjavík - íbúð 0501.  3ja herbergja endaíbúð íbúð 123,7fm. á fimmtu hæð, þar af geymsla 9,0fm. (merkt 0014).  Íbúðinni fylgir stæði merkt B039 í lokuðum bílakjallara.  Íbúðin er skemmtilega hönnuð með tveimur góðum svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum og annað þeirra innaf hjónaherbergi, ásamt fataherbergi.  Gólfhiti í öllum gólfum íbúðar 
Svalir eru við enda hússins með miklu útsýni.  Útsýni til sjávar frá stofu og eldhúsi.
Íbúðin er með aukinni lofthæð um 3,40m

* SJÁVARSÝN   * AUKIN LOFTHÆÐ Í ÍBÚÐUM 340cm * SÉRSMÍÐAÐAR INNRÉTTINGAR 
* HITI Í ÖLLUM GÓLFUM  * GÓLFSÍÐIR GLUGGAR
* QUARTZ STEINN Á BORÐPLÖTUM OG UNDIRLÍMDIR VASKAR
* SNJÓBRÆÐSLUKERFI Í GÖNGUSTÍGUM MEÐ FALLEGRI NÆTURLÝSINGU
* SPENNANDI UMHVERFISSKIPULAG Í NÝJU HVERFI


Innanhúss hönnuður hefur komið að hönnun allra íbúða en í þeim má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá DuravitQuartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum.  Flísar á votrýmum er frá Ebson og eldhústæki frá AEG.  Undirfelldir vaskar í eldhúsi og á baði.

Allir kaupendur og seljendur okkar fá Gullkort Domusnova.  Handhafar gullkortsins fá allt að 35% afslátt hjá 12 samstarfsaðilum okkar: S. Helgason, Sérefni, Birgisson,  Módern, Lín design, Tengi, Nespresso, Öryggismiðstöðin, Ísorka, Lýsing og hönnun, Sólar gluggatjöld og Bm Vallá. 

Lýsing íbúðar:
Forstofa góð með stórum fataskáp 
Eldhús með eyju, góðu skápaplássi.  Innrétting er vönduð með Quartz stein á borðplötum og undirfelldum vaski.
Innbyggð tæki í innréttingu. 
Stofa og borðstofa með góðum gólfsíðum gluggum og fallegu útsýni til sjávar.
Baðherbergi með glugga,  flísalagt 60x60cm ljósgráum flísum frá EBSON bæði gólf og hluti veggja, með vandaðri innréttingu með Quartz stein á baðinnréttingu frá Technistone.  Annað baðherbergi innaf hjónaherbergi er einnig með glugga og flísalagt sömu flísum.
Þvottahús innan íbúðar með innréttingu og flísalagt gólf 60x60cm. flísar frá Ebson
Hjónaherbergi með fataherbergi og baðherbergi innaf, er rúmgott með vönduðum fataskáp.
Svefnherbergi rúmgott með fataskáp sem nær til lofts
Geymsla merkt íbúðinni í kjallara
Hjóla- og vagnageymsla í sameign
Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl
Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar

Allir innviðir í hverfinu sterkir þ.m.t. skólar, leikskólar, verslanir og hvers konar önnur þjónusta í næsta nágrenni.
Leiðakerfi strætó tengist Gufunesi. 
Allar upplýsingar á: https://gufunesid.is/

Íbúðirnar í húsinu eru samtals 26 talsins í tveimur stigahúsum, mjög fjölbreyttar 2-4 herbergja. Stærðir frá 55 fm-180 fm.  Næg stæði fyrir utan hús.

Hverfið:
Við Eiðsvík í Gufunesi er að rísa spennandi íbúðabyggð í gömlu iðnaðarhverfi sem nú hýsir kvikmyndaver og fyrirtæki í skapandi greinum. Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi.
 
Vatnastrætó, ylströnd, göngubrú út í Viðey og góðir göngu- og hjólastígar er meðal þess sem mun einkenna þetta skemmtilega hverfi. Það er einstakt að eiga kost á slíkri náttúruperlu í miðri höfuðborginni.
 
Það er stutt í alla þjónustu, hvort sem það er í verslun, skóla, leikskóla eða íþróttamannvirki.  Í Spönginni má m.a. finna ýmsar matvöruverslanir, vínbúð, veitingastaði, bókasafn, apótek, heilsugæslu, menningarmiðstöð og tónlistarskóla.  Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli.  Þá eru fjölmargir leikskólar í nágrenninu auk þess sem golfvöllur er skammt undan.


Hafið samband við eftirfarandi fasteignasala til að skoða:
Margrét Rós Einarsdóttir lgfs., s. 856-5858 eða margret@domusnova.is
Oscar Clausen lgfs., s. 861-8466 eða oc@domusnova.is
Sölvi Þór Sævarsson lgfs., s. 618-0064 eða solvi@domusnova.is
Agnar Agnarsson lgfs., s. 820-1002 eða agnar@domusnova.is
Aðalsteinn Bjarnason lgfs., s. 773-3532 eða adalsteinn@domusnova.is
Hrannar jónsson lgfs., s. 899-0720 eða hrannar@domusnova.is
Vilborg Gunnarsdóttir lgfs., s. 891-8660 eða vilborg@domusnov.is
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir lgfs.,  s. 856-3566 eða ingunn@domusnova.is

NÁNARI LÝSING:
HÖNNUÐIR:
 Húsin eru hönnuð af ARKÞING Arkitektum.  Mikill fjölbreytileiki er bæði á ytra útliti húsinss og í gerðum og stærðum á íbúðum. Mikið var lagt upp úr gæða efnisvali og góðum lausnum. 
HÚSIÐ: Húsið er  klætt að utan með álklæðningu og því viðhaldslítið. Gluggarnir eru vandaðir ál-tré gluggar frá Byko sem hafa það einkenni að vera með hátt einangrunargildi fyrir hita og hljóði.
ÍBÚÐIR:  Aukin lofthæð í flestum íbúðum, lofthæð þessarar íbúðar um 340 cm og gólfsíðir gluggar.  Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar frá VOKE III
Quartz steinn á borðplötum í eldhúsi og frá Tecnistone á baðherbergi. Rafmagnstæki eru af vandaðri gerð frá AEG.  Span hellurborð og vandaður veggofn í innréttingu.  
Blöndunar- og hreinlætistæki, vaskur og salernisskál frá Duravit (Duravit D-Code og Duravit D-Neo Rimless).  Blöndunartæki eru öll í krómi frá Grohe. 
Á baðherbergi eru vandaðar ljósgráar 60x60cm flísar frá EBSON. 
BÍLAKJALLARINN OG GEYMSLUR:  Bílastæði fylgir flestum íbúðum og góðar geymslur. 
SAMEIGINLEGUR GARÐUR:  Einstaklega fallegur og skjólgóður. Gróður og hellulagðir/steyptir gangstígar sem að hluta til eru með snjóbræðslu ásamt lýsingu. 
AFHENDING: Fyrstu íbúðir eru til afhendingar í apríl 2024.
 
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.
Myndir í söluyfirliti þessu eru tölvugerðar og endurspegla gæði og efnisval íbúða almennt en eiga ekki endilega við um viðkomandi eign.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
DN ehf
https://domusnova.is

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Jöfursbás 5B - íb. 404
Bílastæði
Jöfursbás 5B - íb. 404
112 Reykjavík
118.3 m2
Fjölbýlishús
322
1014 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 5D - íb. 401
Jöfursbás 5D - íb. 401
112 Reykjavík
125.8 m2
Fjölbýlishús
322
945 þ.kr./m2
118.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 5D - íb. 403
Jöfursbás 5D - íb. 403
112 Reykjavík
115.2 m2
Fjölbýlishús
412
1023 þ.kr./m2
117.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 5A - íb. 306
Jöfursbás 5A - íb. 306
112 Reykjavík
118.7 m2
Fjölbýlishús
42
1052 þ.kr./m2
124.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache