DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 5. júní 2026

Hjallahlíð 21

HæðHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
141 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
105.000.000 kr.
Fermetraverð
744.681 kr./m2
Brunabótamat
65.630.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
22476082
Húsgerð
Hæð
Inngangur
Sérinngangur

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir virkilega fallega 4.herbergja neðri sérhæð með bílskúr í tvíbýlishúsi við Hjallahlíð 21 , 270 Mosfellsbæ. Eignin er innst í rólegum botnlanga. Róleg staðsetning í grónu hverfi í Mosfellsbæ

Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn 116,5 m2 auk 24,5 m2 bílskúrs. Samtals 141 m2.

Eignin telur forstofu, gang, þrjú svefnherbergi, stofu, borðstofu, eldhús  geymslu , þvottahús og baðherbergi.
 Stutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla, íþróttasvæði, sundlaug og verslun.

Helstu endurbætur 
* Þvottahús tekið í gegn 2024
* Baðherbergi, ný innrétting 2025


Nánari lýsing:
Andyri með flísum á gólfi og hvítum skóskáp.
Frá anddyri er innangengt í geymslu með góðum skápum á tvo vegu , kommóða fylgir með, flísar á gólfi.
Þvottahús með hvítri háglans innréttingu með skápum og vinnuborð með stálvaski, pláss fyrir tvær vélar, gluggi og límflísar á gólfi.
Eldhús með hvítri innréttingu með fulningum, helluborð og vifta, ofn í vinnuhæð, hvítur keramik vaskur og innbyggð uppþvottavél. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu sem fylgir með í kaupunum.
Stofa og borðstofa er saman í einu rými með parket á gólfum og útsýni yfir Esjuna. Útgengt út á rúmgóða timburverönd sem snýr í suðvestur með skjólveggjum.
Hjónaherbergi með rúmgóðum fataskáp og parketi á gólfi.
Barnaherbergi (1) með parketi á gólfi
Barnaherbergi (2) með parketi á gólfi
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, hiti í gólfi, hvít háglans vaskinnrétting og hár skápur, upphengt salerni, hornbaðkar, handklæðaofn og opnanlegur gluggi.
Bílskúr með rafmagnshurð, þriggja fasa rafmagn, niðurfall, steypt gólf. Innst í bílskúr er afstúkuð geymsla og milliloft.
Bílaplan er fyrir framan bílskúr með snjóbræðslu með plássi fyrir eina bifreið. Rafhleðslustöð.

Hjallahlíð 21 er steinsteypt tveggja hæða hús með risþaki, timburgluggar og hurðar. Inngangur í húsið er sameiginlegur og nýttur sem hjóla- og vagnageymsla, inngangurinn er með glerþaki, álgluggum og álhurð. Hellulagt bílaplan er framan við húsið, á planinu er pláss fyrir tvær bifreiðar. Timburverönd með skjólveggjum er framan við húsið í eigu neðri hæðar.

Garður er í sameign með blómabeðum og trjám og hefur verið vel viðhaldið.


Stutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla, íþróttasvæði, sundlaug og verslun. Róleg staðsetning í grónu hverfi í Mosfellsbæ.

Allar upplýsingar veitir 
Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is
 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Lind fasteignasala ehf
www.fastlind.is

Myndir (57)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugaborg íbúð 602
Bílastæði
Laugaborg íbúð 602
105 Reykjavík
140.7 m2
Fjölbýlishús
423
1507 þ.kr./m2
212.000.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 505
Bílastæði
Laugaborg íbúð 505
105 Reykjavík
129.7 m2
Fjölbýlishús
423
1302 þ.kr./m2
168.900.000 kr.
Skoða eignina Klettaborg 66
Bílskúr
Skoða eignina Klettaborg 66
Klettaborg 66
600 Akureyri
150.2 m2
Raðhús
413
662 þ.kr./m2
99.500.000 kr.
Skoða eignina Þverholt 7
Opið hús:14. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Þverholt 7
Þverholt 7
270 Mosfellsbær
100.2 m2
Fjölbýlishús
312
698 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin