Fasteignaleitin
Skráð 18. ágúst 2024
Deila eign
Deila

Stararimi 55

Tví/Þrí/FjórbýliHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
173 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
129.900.000 kr.
Fermetraverð
750.867 kr./m2
Fasteignamat
106.950.000 kr.
Brunabótamat
82.950.000 kr.
Mynd af Elísabet Kvaran
Elísabet Kvaran
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1996
Garður
Útsýni
Aðgengi fatl.
Fasteignanúmer
2214585
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Vatnslagnir
yfirfarnar
Raflagnir
Yfirfarnar
Frárennslislagnir
yfirfarið
Gluggar / Gler
Yfirfarnir
Þak
yfirfarið
Svalir
Nei
Byggingarstig
B4 - Fullgerð bygging
Matsstig
U - Leyfi útrunnið

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Kaupstaður fasteignasala kynnir bjarta og fallega, mikið endurnýjaða, fjögurra herbergja íbúð með bílskúr í reisulegu tvíbýlishúsi á frábærum útsýnisstað í Grafarvogi. Sérinngangur beint frá góðu bílastæði, stór og glæsilegur 140 m² sólpallur með heitum potti og geymsluhús á lóð. Húsnæðinu hefur verið vel við haldið og mikið endurnýjað á undanförnum árum.

Eignin er skráð skv. fasteignaskrá HMS 173 m² en við bætist c.a 24 m² rými undir bílskúr sem er ósamþykkt.

Anddyri: Gengið er inn um sérinngang sem er flísalagður og með góðum fataskáp.

Gestabaðherbergi: Algjörlega endurnýjað með flísum á gólfum og vegg. Vaskaskápur og upphengt salerni.

Eldhús: Nýleg, vel skipulögð eldhúsinnrétting með spanhelluborði og ofni í vinnuhæð. Stór eldhúseyja með vaski og innbyggðri uppþvottavél, miklu vinnuplássi og góðu geymsluplássi í skúffum og skápum. Parket á gólfi. Glæsilegt útsýni til vesturs úr eldhúsi og stofu

Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð stofa/borðstofa með góðri lofthæð. Þaðan er útgengt út á sólpall. Parket á gólfi

Búr: Lítið búr með hillum og parketi á gólfi.

Barnaherbergi 1: Bjart herbergi með parketi á gólfi.

Barnaherbergi 2: Bjart og rúmgott herbergi með parketi á gólfi og innbyggðum fataskáp.

Hjónaherbergi: Rúmgott með fataherbergi, fallegu útsýni og parketi á gólfi.

Baðherbergi: Algjörlega endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf, stór sturta, upphengt salerni, handklæðaofn og hiti í gólfi.

Þvottahús: Nýlega endurnýjað og rúmgott þvottahús með skápum á veggjum og handklæðaofni. Flísalagt gólf.

Geymsla: Innangengt frá þvottahúsi. Hillur á veggjum og flísar á gólfi.

Bílskúr: Rúmgóður bílskúr með flísum á gólfi. Undir bílskúr er stigi niður í ósamþykkt geymslurými af sömu stærð og bílskúr.

Pallur: Stór og glæsilegur c.a 140 m² pallur með hitaveitupotti frá NormX. Miklir og fjölbreyttir notkunarmöguleikar.

Geymsluskúr: Köld geymsla með tveimur inngöngum, frá bílastæði og frá palli.

  • Húsið var málað að utan sumarið 2022 ásamt því að allir gluggar og útidyrahurðir voru málaðar síðasta sumar.
  • Baðherbergi var algjörlega endurnýjað í lok árs 2023 og skipt var um vatnslagnir á sama tíma.
  • Byrjað er að skipta um þakkant og efni er til staðar til að klára.
  • Gestabaðherbergi var algjörlega endurnýjað sumarið 2021.
  • Þvottahús var algjörlega endurnýjað í lok árs 2019.
  • Pallur með heitum potti var smíðaður sumarið 2019 og hefur honum verið vel viðhaldið.
  • Allar hurðir voru málaðar 2019-2020
Fyrirvarar

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
08/03/201853.800.000 kr.63.000.000 kr.173 m2364.161 kr.
29/08/201438.700.000 kr.48.100.000 kr.173 m2278.034 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Starengi 108
Opið hús:22. sept. kl 16:00-16:30
Skoða eignina Starengi 108
Starengi 108
112 Reykjavík
176.7 m2
Einbýlishús
513
792 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Æsuborgir 7
Bílskúr
Opið hús:24. sept. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Æsuborgir 7
Æsuborgir 7
112 Reykjavík
189.5 m2
Raðhús
713
683 þ.kr./m2
129.500.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 5
Bílastæði
Skoða eignina Jöfursbás 5
Jöfursbás 5
112 Reykjavík
133.1 m2
Fjölbýlishús
322
1051 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 5B - íb. 502
Bílastæði
Jöfursbás 5B - íb. 502
112 Reykjavík
133.1 m2
Fjölbýlishús
422
1051 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin