- Stórar suður svalir
- Mikið endurnýjuð
- Vel stætt og vel rekið húsfélag
- Möguleiki á auka herbergiFalleg og björt 3-4 herbergja íbúð, skráð 107,6 fm samkvæmt HMS íbúð á 3. hæð að Hjallabraut 9 í norðurbæ Hafnarfjarðar.
Eignin hefur fengið gott viðhald og er með virkt og vel rekið húsfélag.
Helst ber að nefna að utanverðu:
-Skipt um þak, rennur og þakkantur lagaður 2018
-Steypa múrviðgerð og húsið heilmálað 2018
-Gluggar endurnýjaðir á 3 hliðum og skipt um svalahurð 2025, viðgerðir á gluggum norðurhlið hússins
-Frárennslislagnir og skólp viðgert og endurnýjað að hluta 2022/23
-Verið er að setja upp hleðslustöðvar á sameiginlegu bílastæði.
Að innan er sameignin mjög snyrtileg og skipt var um teppi 2025 ásamt því að stigagangurinn var heilmálaður.
Blöndunartæki og handklæðaofn endurnýjuð 2025 og nýtt gólfefni á baðherbergi 2026.
Allir ofnar í íbúðinni voru endurnýjaðir 2025.
Hurðar innan íbúðar endurnýjaðar.
Íbúð sem býður upp á marga möguleika.
Þegar gluggar voru endurnýjaðir var sett auka opnanlegt fag í stofu svo auðvelt væri að útbúa auka svefnherbergi með einum léttum vegg.
Einnig möguleiki á að útbúa auka herbergi í borðstofu.
Víðistaðatún, Hellisgerði og frábær íþróttaaðstaða FH í göngufæri.
Víðistaðaskóli og Víðivellir leikskóli einnig ásamt matvöruverslun og allri helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir:Ævar Jóhanns Lgf. s: 861-8827 eða aj@palssonfasteignasala.isGengið er inn í parketlagða
forstofuhol með loftháum skápum.
Við tekur
borðstofa með útgengi á stórar svalir.
Eldhús er flísalagt og með gott borð- og skápapláss ásamt borðkrók. Bakaraofn í vinnuhæð með ljósri innréttingu. Flísalagt á milli efri og neðri skápa.
Inn af eldhúsi er
þvottaherbergi og geymsla með góðu skápaplássi og glugga með opnanlegu fagi.
Stofa er parketlögð, rúmgóð og opin með stórum gluggum og tveimur opnanlegum fögum.
Baðherbergi er útbúið baðkari og sturtuhaus, fallegri hvítri vaskinnréttingu, spegli með yfirlýsingu, handklæðaofni og salerni.
Hjónaherbergi er parketlagt og rúmgott með skápavegg.
Svefnherbergi er einnig parketlagt.
Sér geymsla í kjallara.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Virkt og velrekið húsfélag er starfandi í húsinu.
Eign á góðum stað þar sem stutt er í alla þjónustu.
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.