Fasteignaleitin
Opið hús:22. júlí kl 17:30-18:15
Skráð 19. júlí 2025
Deila eign
Deila

Þórsgata 25

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
99 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
908.081 kr./m2
Fasteignamat
76.300.000 kr.
Brunabótamat
49.600.000 kr.
Mynd af Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Löggiltur fasteignasali / Viðskiptafræðingur
Byggt 1940
Garður
Útsýni
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2006039
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjuð eftir þörfum.
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
já, austur Hallgrímskirkjuútsýni
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Móða  í einu gleri í eldhúsi
Guðbjörg Helga og Gylfi Jens löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX kynna: Þórsgata 25, 101 Reykjavík.
Hlýleg, björt og vel skipulögð 5 herbergja fjölskylduhæð með austursvölum og garði í fjórbýlishúsi efst í Þingholtunum. Íbúðin sem er á 2. hæð er mikið endurnýjuð á smekklegan hátt þar sem haldið hefur verið í upprunalegar sérsmíðaðar íslenskar innréttingar. Inngangi er deilt með 2 öðrum hæðum (1. og 3. hæð), en kjallari er með sér inngang. Kjallari og 1. hæð var byggt 1940 en þessari hæð og 3. hæð var byggt 1957 er húsið var stækkað (sjá myndir).  Þórsgata er róleg gata í miðbænum enda vistgata eins og Laugavegurinn. Húsinu var múrviðgert og málað fyrir nokkrum árum og nýlega var stigagangur tekinn í gegn með nýju teppi og málun. Auk þess sem svalir voru málaðar.  Húsið var stækkað 1957 og var þá þessari og þakhæð bætt ofan á húsið. Sjá myndir af teikningum. 
   
     **SÆKTU SÖLUYFIRLIT HÉR**

    **MYNDIR Í ÞRÍVÍÐRI SÝN - SKOÐAÐU EIGNINA Í 3D - ÞRÍVÍDD OG GANGTU UM HANA HEIMA**
     Ath, táknin neðst til vinstri, þar getur þú t.d. fengið upp mælistiku eða séð íbúðina tóma án húsgagna með aðstoð gervigreindar sem þurrkar út húsgögnin(ýtir á stólinn). 

NÚVERANDI SKIPULAG: Forstofa,  gangur, tvær stofur, 3 herbergi, eldhús, baðherbergi, svalir. Sérgeymsla í kjallara og geymslusvæði undir stiga í kjallara
Í sameign í innangengum kjallara; þvottahús.

NÁNARI LÝSING:
Gólfhiti er í öllum rýmum íbúðarinnar nema svefnherbergin eru með ofna. 
Svalir; Íbúðirnar á 1-3 hæð hafa allar sínar sérsvalir með aðgengi frá sameign. Útsýni að Hallgrímskirkju frá svölunum.
Forstofa:
Rúmgóð og breið forstofa með hvítum fataskáp hólf í gólf með rennihurðum. Stór eldri hurð með gluggum inn í íbúðina.Vínilparket
Stofa og borðstofa: Stofurnar eru samtengdar og mynda eitt rými í dag. Stórir gluggar til suðurs og einnig austurs. Opin fram við  forstofu.
Eldhús er með íslenskri u- laga innréttingu sem er lökkuð hvít og blá. Viðarborðplata. Bakaraofn undir borði, helluborð, hvítur gufugleypir, innbyggð uppþvottavél. Góður borðkrókur með vegghengdum bekk. Tveir gluggar..Flísar á gólfi.
Gangur: Tengir saman rými íbúðarinnar. Þar er hvítlakkaður skápur hólf í gólf með rennihurð. 
Herbergi 1:Rúmgott og bjart. Skápur á einum vegg. Franskur gluggi sem gefur herberginu einstakan sjarma. 
Herbergi II: Nett en samt lúmskt rúmgott. Gluggi.
Herbergi III: Notað sem fataherbergi og skrifstofa í dag, Gluggi. 
Baðherbergi: Nýlega uppgert. Sett Walk-in sturta, ný innrétting með skúffu og handlaug. Speglaskápur á vegg. Salerni. Gluggi. Flísar.
Sérgeymsla i kjallara: Er utan fm.tölu. staðsett gengt þvottaaðstöðu. Einnig er sameign undir anddyri skipt og þessi íbúð með einn hluta undir stiganum.
Sameign: Þvottahús í kjallara, sem er innangengt.

Framkvæmdasaga á síðustu árum:
2024: Ný eldhústæki:
bakaraofn, helluborð og háfur endurnýjað
2021: Eldhús uppgert, Innrétting stækkuð og eldri hlutinn lakkaður, ný viðarborðplata, hitaveituofn fjarlægður og settur gólfhiti og nýjar flísar.
2021: Baðherbergi uppgert; Endurnýjuð Innrétting, sturta, salerni, vaskur, lagður gólfhiti og flísar
2021: Allir ofnar utan herbergja fjarlægðir og lagður gólfhiti og nýtt gólfefni
2020: Skipt var um gler í svefnherbergjum og baðherbergi
Harðparket sett á herbergi. 
Húsið er nýlega viðgert og málað að utan.
Stigangur er nýlega uppgerður, teppalagður og málaður, svo og svalir og svalahurðir.

Samantekið er þetta einstaklega björt og hlýleg íbúð á hæð á einstaklega góðum og rólegum stað í miðbænum.  Listasafn Einars Jónssonar með höggmyndagarði sem gaman er að njóta samverustunda í og fara í lautarferð er rétt við húsið. Einnig er Grænaborg leikskóli og Austurbæjarskóli við Holtið, Sundlaug Reykjavíkur og spítalinn. Örstutt er á Óðinstorg, í verslanir, kaffihús, listasöfn, veitingahús og aðra þjónustu sem miðborgin bíður upp á. Síðan er Tjörnin og Hljómskólagarður í stuttri göngufjarlægð.

Eignin er í sölukeðju og getur verið laus fljótlega eftir kaupsamning.

Nánari upplýsingar veita
Guðbjörg Helga, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur s. 897 7712 og gudbjorg@remax.is
Gylfi Jens, löggiltur fasteignasali og lögmaður s. 822 5124 og gylfi@remax.is
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
17/03/202152.150.000 kr.59.000.000 kr.99 m2595.959 kr.
02/01/201225.150.000 kr.27.500.000 kr.99 m2277.777 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sólvallagata 74
3D Sýn
Opið hús:22. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Sólvallagata 74
Sólvallagata 74
101 Reykjavík
101.3 m2
Hæð
412
887 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Njálsgata 49
Skoða eignina Njálsgata 49
Njálsgata 49
101 Reykjavík
106.5 m2
Fjölbýlishús
312
844 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Eiríksgata 15
Skoða eignina Eiríksgata 15
Eiríksgata 15
101 Reykjavík
98.4 m2
Fjölbýlishús
312
893 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Njálsgata í fjármögnunarferli 59
Njálsgata í fjármögnunarferli 59
101 Reykjavík
91.2 m2
Fjölbýlishús
413
953 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin