SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR
TORG FASTEIGNASALA KYNNIR Í SÖLU: Falleg, 74,1 fm íbúð á jarðhæð með sér inngangi, við Dalsbraut 36, Njarðvík. Eignin skiptist í anddyri, alrými með eldhúsi og borðstofu/stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu í sameign. Gengið er út á sérafnotapall frá stofu. Hjóla- og vagnageymsla í sameign. Merkt stæði og hleðslustöðvar á bílaplani. Afhending er samkomulag.
Nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir lögfræðingur og löggiltur fasteignasali í síma 690 4966 eða matthildur@fstorg.is
Nánari lýsing: Samkvæmt FMR er skráning eftirfarandi: Íbúð 70,0 fm og geymsla 4,1 fm, samtala 4,1 fm
Gengið inn um sérinngang og inn í opið anddyri.
Eldhús er með grárri innréttingu, hvítri steinborðplötu, viftu og bakaraofni. Frontur fyrir innbyggða uppþvottavél fylgir.
Stofa er björt og með útgengi á stóran sérafnotapall til vesturs.
Svefnherbergi eru bæði rúmgóð og með fataskápum.
Baðherbergi er með drapplituðum flísum á gólfi og veggjum að hluta, sturtu með gleri, handklæðaofni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Gólfefni íbúðar eru parket nema á baðherbergi þar sem eru flísar.
Íbúðinni fylgir sér geymsla í sameign (4,1 fm), ásamt sameiginlegri vagna- og hjólageymslu.
Stæði á lóð hafa verið merkt íbúðum en bílaplan er þó í óskiptri sameign skv. eignaskiptasamning.
Stutt er í alla helstu þjónustu, verslun, skóla, leikskóla og falleg náttúra allt í kring.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,-. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.