Pálsson fasteignasala kynnir: Bjart og vel skipulagt 220m2 endaraðhús staðsett miðsvæðis á Seltjarnarnesi. Eignarlóð sem er 573m2 að stærð og fylgir henni skjólgóður garður til suðurs. Frá eigninni er stórkostlegt útsýni yfir Esjuna, Akranes, Snæfellsnes og yfir Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar veitir Þorgeir Símonarson löggiltur fasteignasali í síma 696-6580 eða thorgeir@palssonfasteignasala.is
Eignin er skráð sem 220m2 að stærð með fimm svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum og 42m2 innbyggðum bílskúr. Þrjú bílastæði eru við aðkomu að húsinu, sem er hellulagt með snjóbræðslu, auk tveggja bílastæða til viðbótar við enda innkeyrslu. Tengistöð fyrir hleðslu hefur verið sett upp.
Neðri hæð:
Forstofa: Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og rúmgóðum fataskáp. Strax til vinstri er bjart baðherbergi með sturtuklefa. Úr forstofunni er gengið inn í innri forstofu. Strax til hægri er innangengt í stóran bílskúr. Bílskúrinn er 42m2 og þar er geymsla og þvottahús, stór hurð sem er 2.25m á hæð 3.60m á breidd.
Svefnherbergi: Gengið til vinstri þá er komið í sameiginlegt rými með fataskáp en úr þessu rými er gengið inn í tvö herbergi til hægri stórt rúmgott herbergi með fataskáp og glugga sem snýr inn í garð. Gengið til vinstri er gengi inn í heldur minn herbergi með glugga til norðurs með með fjallasýn, bæði herbergi frábær fyrir ungling sem svefn og lærdómsherbergi. Öll rými með parket á gólfi.
Stigi: Gegnheilt eikarparket heldur síðan áfram upp stigan að efri hæð. Í miðju er stigapallur sem gefur aðgang að skjólgóðum suður garði í gegnum stóra franska hurð.
Efri hæð:
Stofa og borðstofa: Á efri hæð í fallegu stóru opnu rými er stofa og borðstofa. Gluggar í norðurátt býður upp á stórkostlegt útsýni yfir Esjuna, Akranes og Snæfellsnes. Stór gluggi til austurs býður upp á frábært útsýni yfir Reykjavík.
Eldhús: Aðskilið eldhús frá stofu með eldhúsborði, eldhús er ný uppgert að hluta er bjart og rúmgott. Nýleg kvarts borðplata, gler bakplötu, 80 cm Miele span helluborði, Miele veggofni og stór vaskur með Grohe blöndunartæki.
Svefnherbergi og baðherbergi: Komið upp stiga og til vinstri er komið inn í alrými sem gefur aðgang að þremur svefnherbergjum og stóru endurnýjað baðherbergi með nýlegri innréttingum, kvarts borðplötu og baðkari. Baðherbergi er flísalagt, gólf og veggir. Lagt hefur verið fyrir sturtu yfir baðkeri.
Norðurgluggi hjónaherbergisins býður upp á sama fallega útsýni yfir Esju, Akranes og Snæfellsnes, inn af herberginu er fataherbergi með aðgangi að litlu geymslurými á háaloftinu. Hin tvö herbergin snúa út í suður garð. Stærra svefnherbergið er með fataskáp og minna hentar fullkomlega sem svefnherbergi yngra barns eða vinnurými. Öll svefnherbergi eru með gegnheilt eikarparket.
Suður garður: Mjög stór suður garður með afgirtri skjólgóðri verönd, fyrir utan verönd er stór grasflöt með garðhýsi.
Viðhald: Vel viðhaldið hús sem var einangrað að utan og múrað um 2002, múr síðast málað árið 2022. Neysluvatnslagnir endurnýjaðar 2008. Nýr forhitari fyrir ofna 2020. Úti gluggar voru málaðir árið 2025.
Staðsetning: Húsið er mjög vel staðsett nálægt göngu- og hjólreiðastígum, golfvellinum og verslunum. Það er í stuttri göngufæri við líkamsræktarstöð, æfingasvæði og sundlaug.
Allar nánari upplýsingar veitir Þorgeir Símonarson löggiltur fasteignasali í síma 696-6580 eða thorgeir@palssonfasteignasala.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Kaupandi eignarinnar greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignarinnar.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra