Fasteignasalan TORG kynnir: Vel skipulögð, rúmgóð og björt 3ja herb endaíbúð með miklu útsýni og sérinngangi af svalagangi, íbúðin er 91,0 fm og skiptist í stofu, 2 rúmgóð herbergi, eldhús, baðherbergi með þvottaaðstöðu, sér geymsla á hæðinni við hlið íbúðar. Stutt er í alla verslun og þjónustu, heilsugæslustöð, bókasafn, sundlaug, íþróttaaðstöðu, leikskóla og barna- og framhaldsskóla.
Allar nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttir Löggiltur fasteignasali í síma: 822-2225 eða á thora@fstorg.isSækja söluyfirlit hér NÁNARI LÝSING.Forstofa með fataskáp og flísum á gólfi.
Hol með plastparketi á gólfi.
Eldhús er rúmgott, 12 fm., innrétting með góðu skápaplássi og rúmgóðum borðkrók.
Stofa og borðstofa er björt og rúmgóð, ca. 25 fm. með plastparketi á gólfi, útgengi er á stórar skjólgóðar suður svalir með miklu útsýni til austurs yfir Heiðmörk, Elliðavatn, Bláfjöll og Vatnsendahæð.
Baðherbergi, er flísalagt í hólf og gólf, hvít eldri innrétting, baðkar með sturtuaðstöðu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara, gluggi er á baðherberginu.
Auka innbyggður fataskápur er á herbergisgangi.
Hjónaherbergi er rúmgott með stórum fataskápum og plastparketi á gólfi.
Barnaherbergi með fataskáp og plastparketi á gólfi.
Geymsla er á hæðinni við hlið íbúðar, rúmgóð með hillum. Sameiginlegt geymsluherbergi er í sameign á jarðhæð, þar sem hver er með sína hillu og þurrkherbergi þar sem eru tæki til bílaþvottar.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla á jarðhæð.
Húsið var sprunguviðgert og málað 2020, nýir gluggar voru settir í stigahús og nýtt þak á stigahúsið. Gaflar eru klæddir.
Lóð er snyrtileg og gróin, góð bílastæði eru við húsið.
Allar nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttir Löggiltur fasteignasali í síma : 822-2225 eða á thora@fstorg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 3.800,-
3. Lántökugjald lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900,- með vsk.