Fasteignaleitin
Skráð 18. júlí 2025
Deila eign
Deila

Laugavegur íb504 Heklureitur

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
109 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
125.900.000 kr.
Fermetraverð
1.155.046 kr./m2
Fasteignamat
41.950.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Ragnar Kristján Guðmundsson
Ragnar Kristján Guðmundsson
Fasteignasali
Byggt 2025
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Útsýni
Fasteignanúmer
2529793
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
5
Hæðir í húsi
7
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
4
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
2
Upphitun
Gólfhiti
Matsstig
4 - Fokheld bygging
*** Bókið skoðun í S: 844-6516 ***
Fasteignasalan TORG Kynnir: Glæsileg 3ja-4ra herbergja útsýnisíbúð með tvennum svölum á 5. hæð merkt merkt 504, með fallegu útsýni og stæði í bílageymslu. Möguleiki er að bæta við herbergi og þá yrði hún 4ra herbergja. Baðherbergi og sér þvottaherbergi í eigninni. Eignin er alls skráð 109,fm að stærð og skiptist í anddyri, eldhús, alrými með góðu og stofu- og borðstofuplássi með útgengi út á svalir, hjónsvítu, svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og sér geymslu í sameign merkt: 0010, skráð 12,5fm. auk bílastæðis merktu nr. B55.  
Allar nánari upplýsingar, teikningar og skilalýsingu er hægt að nálgast með að hafa samband við Ragnar Guðmundsson, fasteignasali í S: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins HÉR
Sækja söluyfirlit HÉR

Heklureiturinn. 
Heklureiturinn sem er Laugarvegur 168 – 174 er einn mest spennandi miðborgarreiturinn sem er í uppbyggingu í dag.  Reiturinn liggur vel við öllum samgönguæðum, stutt inn á Sæbraut, Miklubraut og Kringlumýrarbraut. Þá er örstutt að ganga í miðbæinn en samt nógu langt frá til þess að verða ekki fyrir truflun þegar miðborgarlífið er í fullri sveiflu.

Úrval íbúða er einstakt frá tveggja herbergja íbúðum upp í stórar þakíbúðir sem og íbúðir á tveimur hæðum og munu henta fyrir nánast allar fjölskyldugerðir. Nokkrar með sér inngangi og/eða inngangi af svalagangi. Allir stigagangar með lyftur.

Í fyrsta áfanga verða 82 íbúðir að Laugarvegi 168 sem eru til afhendingar haustið 2025.
Heildaruppbyggingin mun skila yfir 400 íbúðum alveg við miðborgina og verður umbylting í borgarmyndinni á þessum stað.

Um er að ræða glæsilegar íbúðir í fjölbreyttum stærðum við Laugarveg þar sem áhersla er lög á nútímalega hönnun með vönduðum sérsmíðuðum ítölskum innréttingum og  nýjustu Siemens tækjum. Fágun og gæði voru höfð að leiðarljósi við hönnun íbúðanna. Gluggar nema við gólf og eru hærri til lofts til að hámarka flæði birtu og útsýnis. Gólfhiti er í öllum íbúðum. Studio Homestead kom að hönnun innréttinganna og eru þær sérsmíðaðar af ítalska fyrirtækinu Cubo Design úr Miton línunni þeirra. Quarts steinn er á borðum eldhúss og baðherbergis sem sérframleiddur er á Ítalíu frá Santamargherita. Eldhústæki eru frá Siemens. 

Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds. Aðkeyrsla að bílakjallara er á tveimur stöðum, frá Nóatúni og Laugavegi.

Skipulag:
Deiliskipulagið að reitnum eru fimm byggingar frá Laugavegi 168-174  sem verður byggt í áföngum. Fyrsta húsið sem nú er í byggingu er Laugavegur 168.

Skipulagið tekur mið af því að hámarka  gæði staðsetningarinnar, hvað varðar skjólið frá holtinu, útsýnið sem er í allar áttir og sérstaklega í átt að Esjunni, vestur yfir borgina og austur í fjallahringinn. Einnig til suðurs í átt að Perlunni.

Götumynd verður endurbyggð í Brautarholti, Nóatúni og við Laugaveg. Við Laugaveginn verða þjónustu- og verslunarrými þar sem áætlað er að borgarlínan muni ganga framhjá. Nálægð við þjónustu og samgöngur gefur möguleika á bíllausum lífstíl en í kjallara verða bílastæðahús þar sem hægt er að aka út hvort sem er út á Laugaveginn eða Nóatún

Hönnun:
Að hönnun húsanna á Heklureitnum koma tvær arkitektastofur, Teikna teiknistofa arkitekta og THG arkitektar. Var það gert til þess að auka fjölbreytnina í hönnuninni og sá önnur stofan um innra skipulag á meðan hin einbeitir sér að því að sjá um ytra útlit með því að skapa tilbreytni í uppbroti klæðninganna með litum og efnisvali. Um landslagshönnun sér síðan Lilja Filippusdóttir hjá Lilium teiknistofu.

Áhersla var lögð á að hvert hús hefði sinn karakter og sérkenni en eru síðan bundin saman með sameinandi þáttum í landslagshönnuninni. Til að hámarka birtu stallast húsið niður til suðurs, það ásamt gólfsíðum gluggum í flestum íbúðum eykur birtu innan íbúða.
Myndir tölvugerðar og aðeins til að gefa góða mynd af íbúðum. Sjá nánar skilalýsingu*

Allar nánari upplýsingar, teikningar og skilalýsingu er hægt að nálgast með að hafa samband við Ragnar Guðmundsson, fasteignasali í S: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2025
Fasteignanúmer
2529793
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B5
Númer eignar
5
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Matsstig
4 - Fokheld bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Heklureitur - Íbúð 503
Bílastæði
Opið hús:21. júlí kl 17:00-17:30
Heklureitur - Íbúð 503
105 Reykjavík
112.6 m2
Fjölbýlishús
422
1216 þ.kr./m2
136.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168 íb506 Heklureitur
Bílastæði
undefined Laugavegur 168 íb506 Heklureitur
105 Reykjavík
96.9 m2
Fjölbýlishús
322
1206 þ.kr./m2
116.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168 íb602 Heklureitur
Bílastæði
undefined Laugavegur 168 íb602 Heklureitur
105 Reykjavík
112.2 m2
Fjölbýlishús
312
1203 þ.kr./m2
135.000.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168 íb316 Heklureitur
Bílastæði
Laugavegur 168 íb316 Heklureitur
105 Reykjavík
112.1 m2
Fjölbýlishús
312
1087 þ.kr./m2
121.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin