OPIÐ HÚS - VESTURBERG 199 - LAUGARDAGINN 24. OKT - FRÁ KL. 12.00 - 12.30.
Eggert löggiltur fasteignasali verður á staðnum.
STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Fallegt 224,8 fm einbýlishús á tveimur hæðum með bílskúr og stendur á rúmgóðri lóð með grónum trjám. Mikið óhindrað útsýni yfir borgina og Snæfellsjökul af svölum á efri hæð. Eldhús og stofa eru á efri hæð hússins ásamt gestasalerni og yfirbyggðum sólskála yfir bílskúr. Á neðri hæð hússins er innangengt í bílskúr, rúmgott hol, 3-4 svefnherbergi, aðalbaðherbergi og þvottahús.
Stutt er í alla helstu þjónustu, leik-, grunn- og framhaldsskóli eru í göngufæri. íþróttastarf Leiknis, ÍR og Aþenu sömuleiðis. Strætisvagnar koma ört með stórri skiptistöð í Mjódd þar sem eru verslanir og læknaþjónusta m.a. Bónus og lítill verslunarkjarni er í Hólagarði sem er í allra næsta nágrenni. Svo er náttúruperlan Elliðarárdalurinn ekki langt frá með allar sínar gönguleiðir.
Einbýlishús efri hæð er 110,5 fm (merkt 01-0201), bílskúr er 34,6 fm (merkt 01-0101) og íbúðarherbergi á hæð er 79,7 fm (merkt 01-0102) samtals er eignin 224,8 fm skv. skráningu Þjóðskrá Íslands.Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.isForstofa er með marmaraflísum á gólfi.
Hol er með parketi á gólfi og skápum, þar er einnig stigi upp á efri hæð hússins.
Stofa er með parketi á gólfi, gasarinn og úr stofu er útgengt á rúmgóðar suðursvalir með miklu útsýni yfir borgina. Stofan er á efri hæð hússins.
Eldhús er með korkflísum á gólfi, eldri viðarinnréttingu með flísum á milli efri og neðri skápa. Inn af eldhúsi er búr þar er dúkur á gólfi og skápar.
Svefnherbergin eru 4 upprunalega en eru nú búið að gera eitt herbergi úr tveimur, parket á gólfum og skápar.
Baðherbergi er með flísar í hólf og gólf, baðkar, sturtuklefi, handklæðaofn, wc, innrétting í kringum vask og gluggi með opnanlegt fag.
Gestabaðherbergi á efri hæð er með flísum á gólfi, upphengt wc, vaskur, skápur og gluggi með opnanlegt fag.
Sólskáli á efri hæð er með flísum á gólfi og þaðan er útgengt á austursvalir.
Þvottahús er með flísum á gólfi, vaskur og hillur og þaðan er líka útgengt út í garð bakatil.
Bílskúr er með flísum á gólfi, rafmagn í hurð, hillur og heitt og kalt vatn.
Geymsla inn af bílskúr er með flísum á gólfi og hillum. Kaldur geymsluskúr á lóð bakvið hús.