Fallegt og vel skipulagt fjögurra herbergja einbýlishús með innbyggðum bílskúr í jaðri Selskógar. Stofa og eldhús eru í opnu og rúmgóðu rými með upptekið loft, vandað vínylparket á gólfi og eldhúsinnréttingu með eyju frá Voke-III. Útgengt er úr eldhúsi/stofu í garð. Baðherbergi er flísalagt, þar er rúmgóð Brúnás-innrétting, sturta og handklæðaofn. Útgengt er úr baðherbergi sem hentar sérlega vel ef t.d. heitum potti er komið fyrir í garði. Þrjú svefnherbergi eru í húsinu, öll með vínylparket á gólfi og rúmgóður fataskápur er í hjónaherbergi. Inn af hjónaherbergi er sér baðherbergi. Þar eru flísar á gólfi, rúmgóð sturta, Brúnás-innrétting og handklæðaofn. Flísar eru einnig í þvottahúsi og þar er mjög fín Brúnás-innrétting. Útgengt er úr þvottahúsi í bakgarð. Innangengt er í 33,7 m² bílskúr með bílhurð. Gólfhiti er í öllu húsinu og hellulögð aðkoma að húsi er með snjóbræðslukerfi. Húsið lítur vel út í alla staði enda byggt 2023.
Nánari upplýsingar um eignina: Húsið er timburhús á steyptri plötu með 100 mm einangrun og samanstendur húsið af forsmíðuðum einingum sem eru einungis smíðaðar úr CE-vottuðum efnum frá Seve í Eistlandi (www.seve.ee). Þak er einhalla og einangrað með 225 mm ull og klætt með 18 mm krossvið og tvöföldum bræddum tjörudúk (Bitumen). Allir gluggar eru álklæddir timburgluggar með tvöföldu gleri. Gluggar eru frá norska fyrirtækinu Nordan. Útidyrahurðir (timburhurðir) er einnig frá Nordan sem og bílskúrshurð sem er úr ál-samsettu efni. Gluggar og hurðir eru svört á lit. Útveggir eru einangraðir með 175 mm ull og klæddir með láréttri og svartmálaðri timburklæðningu. Innveggir eru allir klæddir með Fermacell trefjaplötum sem hafa góða vatnsvörn og er brunatefjandi efni. Mjög gott hald fyrir hverskonar festingar er í Fermacell trefjaplötum.

Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
13/04/2023
4.820.000 kr.
52.000.000 kr.
144.8 m2
359.116 kr.
Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.