Fasteignaleitin
Skráð 14. sept. 2025
Deila eign
Deila

Hafnargata 12

EinbýlishúsAusturland/Seyðisfjörður-710
84.6 m2
4 Herb.
Verð
25.900.000 kr.
Fermetraverð
306.147 kr./m2
Fasteignamat
19.600.000 kr.
Brunabótamat
39.050.000 kr.
Byggt 1880
Fasteignanúmer
2168550
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Lóðarréttindi
Leigulóð
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali thordis@lindinfasteignir.is kynna:
Hafnargata 12, Seyðisfirði.
Húsið er byggt 1880 og er mögulega elsta íbúðarhús Seyðisfjarðar sem enn stendur á sínum upprunalega stað.
Innbú fylgir húsinu við sölu.
Gengið er inn í forstofu þar sem liggur brattur stigi upp á aðra hæð og hurð inná gang.
Frá ganginum eru hurðir inní 4 rými.
Stórt baðherbergi sem var endurnýjað 2017 með grænum glermósaíkflísum og gólfhita. Þar er bæði bað og góð sturta.
Ágætlega rúmgóð tvöföld stofa. Innra herbergið gæti nýst sem borðstofa, skrifstofa, gestaherbergi, leikherbergi…
Rúmgott eldhús með plastparketi. Neðri skáparnir frá um 1950 en þeir efri nýlegir.
Innaf eldhúsinu er ágætt svefnherbergi.
Frá ganginum er einnig lítil hurð sem liggur niður í gluggalausann kjallara sem er undir eldri hluta hússins,
þar er hitakútur og hefilbekkur og þaðan eru dyr út. Lágt er til lofts en alveg hægt að nýta rýmið sem vinnuaðstöðu.
Í risi eru tvö svefnherbergi, stigapallur og skápar undir súð.
Búið er að samþykkja útlitsbreytingu á húsinu þannig að það séu fánagluggar og bárujárnsklæðning.
Til eru 9 gluggar sem fylgja með.
Það á eftir að smíða stærri stofugluggann, lítinn glugga í forstofuna og útihurð.
Settir voru upp nýjir ofnar í eldhús og stofur 2021.
Húsið er friðað að utan og hægt að sækja um styrki til endurbóta hjá Minjastofnun.
Húsið er á rólegum stað en stutt í helstu þjónustu.
Staðsetningin er skilgreind á hættusvæði B en með nýjum varnargörðum ætti að vera lítil hætta.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
02/10/20135.110.000 kr.5.800.000 kr.84.6 m268.557 kr.
27/06/20114.750.000 kr.4.500.000 kr.84.6 m253.191 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
LF-fasteignasala/Lindin fasteignir
http://www.lindinfasteignir.is
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin