DV logo
Fasteignaleitin
Opið hús:11. okt. kl 13:00-14:00
Skráð 10. okt. 2026

Vorbraut 8 (304)

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
115.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
101.900.000 kr.
Fermetraverð
879.206 kr./m2
Byggt 2026
3. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
25434532
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

--- Mikið útsýni ---

--- Glæsileg 4ra herbergja íbúð við Vorbraut 8 í Garðabæ með bílastæði í bílakjallara, rúmgóðu alrými, þvottaherbergi og svölum með svalalokun ---


Skoða verkefnið nánar á hlekk: www.vorbraut8-12.is Upplýsingar gefur: Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS

LIND Fasteignasala og ÞG Verk kynna með stolti: Nýjar og glæsilegar íbúðir við Vorbraut 8 í Garðabæ. Um er að ræða fjölbreyttar 2ja - 4 herbergja íbúðir í lyftuhúsi og fylgja bílastæði í bílakjallara flestum íbúðum. Svalir eða sérafnotaflötur fylgir öllum íbúðum ásamt sérgeymslu á jarðhæð. Loftskiptikerfi er í öllum íbúðum.

Íbúð 304: Er glæsileg 115,1 fermetra 4ra herbergja íbúð á 3. hæð með svölum með svalalokun og sérmerktu bílastæði í lokuðum bílakjallara. Stór geymsla fylgir íbúðinni sem er 13,4 fermetrar að stærð. Afhending er í mars eða apríl 2027 með fyrirvara um að öryggisúttekt sé komin á húsið.

Nánari lýsing: Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús í alrými með eyju sem er opið við stofu/borðstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Útgengi á svalir með svalalokun frá stofu og er sérmerkt stæði í bílakjallara.

Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir og klæddir að utan sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini.

Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins: www.vorbraut8-12.is

Vorbraut stendur á einstökum stað í Garðabæ – í grónu og friðsælu umhverfi þar sem náttúra og þægindi borgarlífs fara saman. Hér eru fjölbreytt útivistarsvæði og fallegar gönguleiðir rétt við heimilið, auk þess sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og alla helstu þjónustu. Garðabær er þekktur fyrir öflugt samfélag, góðar samgöngur og fjölbreytt tækifæri til íþrótta, menningar og útivistar – allt sem þarf fyrir virkt og innihaldsríkt daglegt líf.

Svæðið í kringum Vorbraut býður upp á jafnvægi milli rólegrar náttúru og nálægðar við líflega miðju höfuðborgarsvæðisins. Hér getur þú notið kyrrðarinnar heima fyrir og verið samt aðeins örfáum mínútum frá vinnu, verslun og afþreyingu. Það gerir Þorraholt að kjörnum stað fyrir þá sem vilja bæði lífsgæði og þægindi í senn. Til suðurs er golfvöllur GKG, Leirdalsvöllur sem er glæsilegur 18 holu völlur. Spottakorn lengra er Vífilstaðavatn og Heiðmörkin með óteljandi hjóla- og göngustígum. Til norðurs er Smáralind ásamt verslunarkjörnum í Lindum og á Dalvegi. Þá er Garðatorg alltaf vinsælt meðal Garðbæinga þar sem eru skemmtilegir veitingastaðir og ýmis þjónusta.

ÞG Verk hafa yfir 28 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína. 

Ef misræmi er á milli eignaskiptasamnings, söluyfirlits og/eða sölusíðu þá gilda þær upplýsingar sem koma fyrir í eignaskiptasamningi og samþykktum teikningum. 

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR:
Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS

Innréttingar:
Í eldhúsum og baðherbergjum eru Arens innréttingar (Ormsson). Innréttingar eru í viðarútliti. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Neðri skápar á baðherbergjum eru með skúffu og efri skápar eru með spegli.

Eldhústæki: Íbúðunum fylgja vönduð eldhústæki af gerðinni Siemens. Íbúðum er skilað með spanhelluborði (innbyggð vifta í helluborði þar sem eldhúseyjur eru), innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni og viftu (ef er ekki eldhúseyja).

Hreinlætistæki: Salernisskál (Grohe) er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturtur eru með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Handlaugar eru ýmist frá Roca eða Valadares. Blöndunartæki eru hitastýrð frá Grohe. Þvottahús eru ýmist innan baðherbergja eða í sér rými.

Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Eignin afhendist skv. skilalýsingu. 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Lind fasteignasala ehf
www.fastlind.is

Myndir (4)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Asparholt 5
Efsta hæð
Hleðslustöð
Opið hús:11. okt. kl 13:00-13:30
Skoða eignina Asparholt 5
Asparholt 5
225 Garðabær
116,8 m2
Fjölbýlishús
412
744 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 0420
Hleðslustöð
Opið hús:11. okt. kl 13:00-13:30
laugaborg 420 .jpg
Skoða eignina Laugaborg 0420
Laugaborg 0420
105 Reykjavík
112,1 m2
Fjölbýlishús
312
1007 þ.kr./m2
112.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 0320
Hleðslustöð
Opið hús:11. okt. kl 13:00-13:30
laugaborg 320.jpg
Skoða eignina Laugaborg 0320
Laugaborg 0320
105 Reykjavík
107,5 m2
Fjölbýlishús
312
971 þ.kr./m2
104.400.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 0221
Hleðslustöð
Opið hús:11. okt. kl 13:00-13:30
laugab. 221.jpg
Skoða eignina Laugaborg 0221
Laugaborg 0221
105 Reykjavík
102,8 m2
Fjölbýlishús
312
972 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin