Björt og vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð í fallegu og fjölskylduvænu hverfi í Hveragerði.- Fjölskylduvænt hverfi með leikvelli, gróðurhúsum og stutt í alla helstu þjónustu.
- Björt jarðhæðaríbúð með beinu aðgengi út á verönd og sameiginlegan garð.
- Fallegt og bjart alrými með stórum gluggum og vandaðri eldhúsinnréttingu.
- Þrjú rúmgóð svefnherbergi, sérgeymsla og sérmerkt bílastæði.
Nánari upplýsingar veita:Andrea Ósk Harradóttir astmf. í S: 785-6698 eða andrea@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð eignar er 80m² samkv. HMS.
Eignin skiptist í forstofu, bjart alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, þrjú góð svefnherbergi, baðherbergi, sérgeymslu í sameign og sérmerkt bílastæði.
Nánari lýsing eignar:Forstofa: Flísalögð forstofa með góðum fataskáp.
Eldhús: Falleg og tímalaus eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi og vönduðum heimilistækjum. Eldhúsið er opið við stofu og borðstofu og myndar bjart og notalegt alrými.
Stofa og borðstofa: Bjart og rúmgott alrými með stórum gluggum sem hleypa inn mikilli dagsbirtu. Gott pláss er fyrir setustofu og borðstofu. Útgengt er út á hellulagða verönd og sameiginlegan garð.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með stórum fataskáp.
Svefnherbergi I: Bjart og rúmgott herbergi með fataskáp.
Svefnherbergi II: Bjart svefnherbergi sem hentar vel sem barnaherbergi, gestaherbergi eða vinnuaðstaða.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með sturtu, upphengdu salerni, snyrtilegri innréttingu og þvottaaðstöðu með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Sérgeymsla í sameign.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.