Eignamiðlun kynnir:
Efri sérhæð og bílskúr, samtals 232,3 fm. Eignin er einstaklega falleg og er norður útsýni frá stofu og eldhúsi mjög gott. Stórt upphitað bílaplan, þar sem stæði er fyrir fjóra bíla og rúmgóður ca 50 fm bílskúr. Þá er búið að stúka af, (ca 20 fm) íbúðarrými með sérinngang af bílskúr. Um er að ræða tvíbýlishús við Starhólma 6 í Kópavogi rétt við Fossvogsdalinn. Íbúðin hefur verið töluvert endurnýjuð. Stutt er í alla helstu þjónustu. Hiti er í plani og gönguleið upp stiga að íbúð. Húsið er nýlega málað og er þak nýlega endurnýjað. Góðar verandir eru í kringum húsið og stórar svalir frá stofu til suðvesturs. Neðri hæð er einnig til sölu svo mögulegt væri að eignast allt húsið.Íbúðin skiptist í stofu, eldhús,
þrjú svefnherbergi auk hjónasvítu með baðherbergi, snyrtingu, þvottahús og anddyri. Votrými og anddyri eru með gólfhita, annars eru ofnar á hæðinni.
Gengið er inn í íbúðina inn um
sérinngang á austurhlið hússins. Gengið er upp stiga í
anddyri sem byggt var við húsið.
Hiti er í stéttum og stiga og nýtt handrið. Komið er inn á parketlagt
anddyri með fataskáp.
Stofa og eldhús eru í sameiginlegu rými þar sem útsýni er mikið til norðurs. Parket er á gólfum.
Eldhúsið er með fallegum hvítum innréttingum og stórri eyju. Steinn er á vinnuborðum eldhúsinnréttingar. Opið er út á svalir til suðvesturs frá stofu.
Svefnherbergin eru fjögur. Tvö meðalstór herbergi, eitt stórt og svo
hjónasvíta með baðherbergi, parket á gólfum. (samþykktar teikningar eru ekki algjörlega í samræmi við núverandi skipulag). Rennihurð er að hjónasvítu.
Baðherbergi í hjónasvítu er flísalagt í hólf og gólf og með stóru flísalögðu sturturými og innréttingum. Stór glerveggur er frá sturtu yfir í herbergið. Innbyggð blöndunartæki og gluggi er á baði. Parketflísar eru á baði og í sturtu sem eru í stíl við parket í herberginu. Góður fataskápur er í rýminu. Á herbergisgangi er flísalagt
baðherbergi með sturtu og glugga. Einnig er á herbergisgangi
þvotthús með glugga. Á neðri hæð við framhlið hússins er svo rúmgóður og flisalagður
bílskúr og fjögur bílastæði. Rafmagn hefur verið endurnýjað í húsinu að mestu.
Um er að ræða mjög góða og vel staðsetta íbúð á höfuðborgarsvæðinu. Á næstu árum stendur til að endurnýja götuna ásamt lögnum að húsinu að sögn eiganda.Nánari upplýsingar veitir Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 824-9098, tölvupóstur hilmar@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook