DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 25. ágúst 2026

Ásabraut 2

Atvinnuhúsn.Suðurnes/Grindavík-240
79.2 m2
1 Herb.
1 Baðherb.
Verð
17.500.000 kr.
Fermetraverð
220.960 kr./m2
Brunabótamat
35.000.000 kr.
Byggt 2002
Sérinng.
Fasteignanúmer
20922461
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Inngangur
Sérinngangur

Fasteignasalan BÆR, Auður & Ólafur kynna: tvö hús sem í dag eru notuð sem skólastofur. Kaupandi skal flytja húsin burtu.
Húsin eru byggð tilbúin til flutnings með stálbitum undir.

Nánari lýsing:
Komið er inn í anddyri með fatasnögum og bekkjum á veggjum á þrjá vegu. Úr anddyri er komið í stóran sal, skólastofuna sjálfa. Skólastofan er björt með góðum gluggum. Inn af því miðrými, við hlið anddyris, eru inntaks- og ræstiherbergi ásamt þar við hlið snyrtingu með gólfstandandi klósetti og vaski.
Inntaks- og ræstiherbergi er með inntökum og rafmagnstöflu ásamt stálvaski.
Húsin virðast í góðu ástandi að innan sem utan og seljast saman eða sitt i hvoru lagi. Uppgefið verð er fyrir eitt hús.
Húsin hafa verið tengd við rafmagn og hita.
Á gólfi í öllum rýmum er gólfdúkur.
Myndir teknar með dróna af þaki fylgja sölugögnum.

Bæði húsin eru gerð eftir sömu teikningu. Í öðru húsinu hefur glugga verið breytt í hurð á gafli á móti inngöngudyrum.
Eignirnar eru skráðar þannig hjá HMS: skólastofur 2 x 79,2 fm byggt 2002. Brunabótamat er 35 m á hvoru húsi. Matshlutar 070101 & 080101.
Hægt er að nýta húsin sem skólastofur, sumarhús, gestahús eða atvinnuhúsnæði. Athugið húsin verða seld til flutnings.

Að sögn seljanda eru húsin byggð hjá SG á Selfossi.

Allar nánari upplýsingar veita:
Auður Sigr Kristinsdóttir s 824-7772 & tölvupóstur audur@fasteignasalan.is 
Ólafur Tr Thors s 666-8-777 & tölvupóstur olafur@fasteignasalan.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.                 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og til húsfélags, þegar um það er að ræða. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.  

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Bæjarfasteignir ehf
www.fasteignasalan.is

Myndir (13)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ásabraut - til flutnings 2
Ásabraut - til flutnings 2
240 Grindavík
79.2 m2
Sumarhús
11
221 þ.kr./m2
17.500.000 kr.
Skoða eignina Unnardalur 9E
Unnardalur forsíða jpg.jpg
Skoða eignina Unnardalur 9E
Unnardalur 9E
260 Reykjanesbær
88.4 m2
Fjölbýlishús
413
678 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Tjarnabraut 2 (208)
Hleðslustöð
Tjarnabraut 2 (208)
260 Reykjanesbær
91.3 m2
Fjölbýlishús
413
760 þ.kr./m2
69.400.000 kr.
Skoða eignina Tjarnabraut 2 (208)
Mynd 1 úti.jpg
Tjarnabraut 2 (208)
260 Reykjanesbær
91.3 m2
Fjölbýlishús
413
760 þ.kr./m2
69.400.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin