Lind fasteignasala kynnir TIL LEIGU glæsilega og vandaða 111 fm 4ra herbergja íbúð í nýlegu húsi í Vogahverfi Reykjavíkur. Vandaðar ítalskar innréttingar, Bjart alrými með útgang á 22fm verönd með heitum potti, þrjú rúmgóð svefnherbergi, þvottahús innan íbúðar, tvær geymslur, sér stæði í bílageymslu.
Nánari lýsing eignar: komið er inn í góðan forstofugang með fataskáp. Alrými með eldhúsi og stofu með útgangi á 22 fm verönd til austurs með heitum potti að auki eru 8,4 fm yfirbyggðar svalir til suðausturs. Í eldhúsi eru vandaðar Gili Creation innrétting með innbyggðum vönduðum AEG tækjum m.a. ofn í vinnuhæð, eyjuháfur yfir helluborði og Silestone kvarststeinn á borðum. Svefnherbergin eru þrjú, rúmgóð með fataskápum. Baðherbergi með walk in sturtu, reyklitað sturtugler, falleg innrétting, handklæðaofn, flísalagt í hólf og gólf. Gólfsíðir gluggar. Gólfefni á íbúðinni er vínylparket á öllum rýmum nema Gili Creation flísar á baðherbergi og þvottahúsi. Sér þvotthús með innréttingu og vaski. Geymsla með hillum innan íbúðar og að auki er sér 4,2 fm geymsla í sameign með hillum. Sameignin er einstaklega snyrtileg. Í sameign er hjóla og vagnageymsla. Sér bílastæði í bílageymslu, þar er lagt fyrir hleðslustöð.
Húsið er staðsteypt, einagrað að utan og klætt og er því viðhaldslítið. Ofan á bílageymslu er sameignlegur garður með gróðri og leiktækjum. Lóðin er með hellulögðum stéttum, sameiginlegum fallegum garði með leiktækjum. Lokanlegu hliði hefur verið komið fyrir við útgang garðsins, sem gerir hann einstaklega barnvænan og öruggan. Heitur pottur er Husky rafmagnspottur frá Arctic Spas. Rafmagnskostnaður vegna pottsins er mjög lítill. Snjalllásakerfi frá Brafa hefur verið sett upp fyrir íbúðina, bílskúrshurð, útihurð inn í sameign og inngang að bílastæðum. Ragnar Sigurðsson innanhúsarkitekt sá um hönnun en í íbúðinni eru innréttingar úr reyktri melamin eik frá ítalska Gili creations.
Nánari upplýsingar veitir:
Albert Bjarni Úlfarsson fasteignasali // 8210626 // ALBERT@FASTLIND.IS
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar.
Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 10 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma & SÝN.