DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 16. júlí 2026

Skipalón 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
131.5 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
112.900.000 kr.
Fermetraverð
858.555 kr./m2
Brunabótamat
81.110.000 kr.
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
22920958
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Björt og afar falleg fjögurra herbergja íbúð á efstu hæð (6. hæð) með stórkostlegu útsýni yfir Hafnarfjörð og nágrenni. Frá íbúðinni má meðal annars njóta útsýnis til Esjunnar og yfir hið víðáttumikla Hafnarfjarðarsvæði. Skipulag íbúðarinnar er einstaklega vandað og vel úthugsað, en hún býður upp á tvennar svalir, tvö baðherbergi og sérmerkt stæði í bílageymslu.
Eignin er staðsett að Skipalóni 6 í Hafnarfirði og er ætluð fyrir 50 ára og eldri.

Samkvæmt HMS er heildarstærð eignarinnar 131,5 fm, þar af er íbúðin sjálf 120,7 fm og sérgeymsla í kjallara 10,8 fm.

Forstofan  með flísalögðu gólfi og góðum fataskápum. Stofa og borðstofa eru rúmgóðar og bjartar með parketi á gólfi, og þaðan er útgengt á yfirbyggðar suðursvalir. Eldhúsið er opið og samræmist vel alrýminu, með eyju, helluborði, viftu og ofni í vinnuhæð, auk rýmis fyrir tvöfaldan ísskáp. Úr eldhúsi er einnig útgengt á svalir sem snúa í norður.
Svefnherbergin eru þrjú, öll parketlögð, þar af eru fataskápar í tveimur þeirra. Eitt herbergjanna er með rennihurð inn af stofu og er í dag nýtt sem sjónvarpsherbergi. Frá hjónaherbergi er aðgengi að sérbaðherbergi sem er flísalagt með innréttingu og baðkari.
Auk þess er annað baðherbergi við forstofu, einnig flísalagt, með sturtu og snyrtilegri innréttingu. Inn af því er þvottahús með góðri vinnuaðstöðu og innréttingu.
Í kjallara fylgir sérgeymsla og sérmerkt bílastæði í bílageymslu (B36). Sameign hússins er snyrtileg og þar er meðal annars hjóla- og vagnageymsla. Húsfélagið býður einnig upp á glæsilegan veislusal sem rúmar um 50 manns í sæti.

Staðsetningin er góð, í stuttri fjarlægð frá miðbæ Hafnarfjarðar þar sem finna má fjölbreytta þjónustu, veitingastaði og menningarlíf.

Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / eirikur@as.is
og Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Ás fasteignasala

Myndir (47)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Smárabarð 2
Efsta hæð
Opið hús:20. júlí kl 19:00-19:30
Skoða eignina Smárabarð 2
Smárabarð 2
220 Hafnarfjörður
115.5 m2
Fjölbýlishús
413
605 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Strandgata 26 íb. 501
Bílastæði
Strandgata 26 íb. 501
220 Hafnarfjörður
126.5 m2
Fjölbýlishús
312
1240 þ.kr./m2
156.900.000 kr.
Skoða eignina Strandgata 26 íb. 302
Strandgata 26 íb. 302
220 Hafnarfjörður
135.5 m2
Fjölbýlishús
413
996 þ.kr./m2
134.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 37
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Hringhamar 37
Hringhamar 37
221 Hafnarfjörður
95.9 m2
Fjölbýlishús
312
833 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin