Fasteignaleitin
Skráð 21. maí 2025
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf

ParhúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
342 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
86.800.000 kr.
Fermetraverð
253.801 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
206110424
Húsgerð
Parhús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Stór verönd þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG PARHÚS Á EINNI HÆÐ Á LA FINCA GOLFVELLINUM*

Sérlega vönduð og falleg, vel skipulögð og rúmgóð og ný parhús á einni hæð í stuttu göngufæri frá klúbbhúsinu við hinn glæsilega La Finca golfvöll. Góð sér lóð með einkasundlaug og stór þakverönd með frábæru útsýni. Um 30 mín akstur suður frá Alicante. Sérlega glæsileg hús með góðu alrými, þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum.  Kjallari sem býður upp á ýmsa nýtingar möguleika. Sér lóð með góðri verönd og einkasundlaug. Göngufæri á golfvöllinn, verslanir og veitingastaði.
Bílastæði inni á lokaðri lóð. Glæsilegt sýningarhús á staðnum, sem hægt er að skoða fullbúið húsgögnum.

Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. adalheidur@spanareignir.is. 00354 893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is. 0034 615 112 869.
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. 00354 777 4277. karl@spanareignir.is.

Nánari lýsing:

Falleg aðkoma er að húsinu og skiptist það í gott eldhús, með góðri tengingu við útisvæði og stofu/borðstofu í rúmgóðu alrými. Rafmagnstæki fylgja í eldhúsi. Þvottahús inn af eldhúsi.
Hjónasvíta með sér baðherbergi. Auk þess tvö svefnherbergi til viðbótar á sérgangi og þar er annað baðherbergi. Gólfhiti á baðherbergjum.
Stór kjallari fylgir, og er hægt að láta innrétta hann eftir óskum kaupenda.

Út frá stofunni er stór verönd og góður, lokaður garður með flottri aðstöðu til að njóta sólar, grilla ofl. Einkasundlaug og þakverönd. 
Sér bílastæði inni á lokaðri lóð.
Fallegt umhverfi.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.
Aðeins örfá hús í boði.

Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, í örstuttu göngufær við nýja og flotta klúbbhúsið á La Finca golfvellinum 5* golf og spa hótel og nýjan og glæsilegan þjónustukjarna þar sem er að finna  gæðaveitingastaði, vínsmökkun og verslanir. Einnig eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, Las Ramblas, Lo Romero, Vistabella, Roda Golf,  La Marquesa og fleiri.

Ca. 20 mín akstur er niður á ströndina og ca. 20 mín akstur í vinsælu verslunarmiðstöðina, La Zenia Boulevard. Ennfremur er stutt að keyra í skemmtilega bæi í næsta nágrenni, t.d. Algorfa og Ciudad Quesada.

Lúxuseign fyrir kröfuharða golfara og fólk sem kann að njóta lífsins.
Gengi 1Evra=145ISK
Verð frá 599.000 Evrur. (86.800.000ISK) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin.

Hús 109 fm
Kjallari 127 fm
Verönd 32 fm
Sólverönd 74 fm
Samtals 342 sérafnota fm.
Húsin eru til afhendingar í mars 2026.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is
Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.

Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, sundlaugargarður, air con, bílastæði,
Svæði: Costa Blanca, La Finca,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Torrevieja
SPÁNAREIGNIR - Torrevieja
Spánn - Costa Blanca
355 m2
Einbýlishús
423
243 þ.kr./m2
86.200.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
Spánn - Costa Blanca
343 m2
Einbýlishús
423
262 þ.kr./m2
89.700.000 kr.
Skoða eignina Hvanneyrarbraut 35
Hvanneyrarbraut 35
580 Siglufjörður
282.5 m2
Einbýlishús
848
319 þ.kr./m2
90.000.000 kr.
Skoða eignina Þrúðvangur 20
Skoða eignina Þrúðvangur 20
Þrúðvangur 20
850 Hella
283.6 m2
Einbýlishús
813
314 þ.kr./m2
89.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin