DV logo
Fasteignaleitin
Opið hús:16. ágúst kl 12:00-12:45
Skráð 11. ágúst 2026

Álfholt 2

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
110.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
67.900.000 kr.
Fermetraverð
615.036 kr./m2
Fasteignamat
66.800.000 kr.
Brunabótamat
58.950.000 kr.
Mynd af Sölvi Þór Sævarsson
Sölvi Þór Sævarsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1991
3. hæð · efsta
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2073223
Landnúmer
119922
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar raflagnir
Frárennslislagnir
Upphaflegar lagnir
Gluggar / Gler
Upphaflegir búið að skipta um gler í stofu fyrir nokkrum árum síðan. Móða milli glerja í eldhúsi.
Þak
upphaflegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suðursvalir
Upphitun
Ofnalagnir
Inngangur
Sameiginlegur
Gallar
Móða er á milli glerja í glggum í eldhúsi og þarfnast lagfæringar. Opnanlegt fag í baðherbergi lekur, til stendur að seljandi láta laga það.
Valhöll og Sölvi Þ. Sævarsson lgfs, kynna í einkasölu: Bjarta og vel skipulagða 4ra herbergja útsýnisíbúð á 3. hæð við Álfholt 2c í Hafnarfirði. Íbúðin getur verið laus við kaupsamning.
 

Eignin er í heild skráð 110,4 m² skv. Hms, þar af er 9 m² geymsla.  Fyrirhugað fasteignamat 2027 er 68.850.000.- Byggingarár er 1991.

Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, hjónaherbergi tvö rúmgóð barnaherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu í sameign. Hjólagyemsla í sameign á jarðhæð.
 
Allar nánari uppl.  veitir Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali í s. 618-0064 / solvi@valholl.is 

Nánari lýsing:
Anddyri – Hvítir rúmgóðir fataskápar, rennihurð milli anddyris og íbúðar. Dökkar flísar á gólfi.
Eldhús –  Hvít snyrtileg innrétting með góðu skápaplássi. Gler á vegg milli efri og neðri skápa. Bakarofn í góðri vinnuhæð, spanhelluborð og uppþvottavél sem fylgir. Dökkar flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa – Rúmgóð stofa og borðstofa í sameiginlegu rými með hurð út á stórar suðursvalir með miklu útsýni. Gott útsýni er úr stofu í suður og að sjó. Harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi – Rúmgott hjónaherbergi, nýlegir sprautulakkaðir fataskápar í lit, harðparket á gólfi. Hjónaherbergi er í dag nýtt sem barnaherbergi.
Barnaherbergi I – Ágætlega rúmgott með hvítum fataskáp, harðparket á gólfi.
Barnaherbergi II – Ágætlega rúmgott með hvítum fataskáp, harðparket á gólfi.
Baðherbergi – Rúmgott baðherbergi með hvítum veggflísum og svörtum flísum á gólfi. Hvít baðinnrétting með góðu skáparými. Baðkar með sturtuaðstöðu og hengi þar við. Gluggi á baði
Þvottahús – Borðplata yfir rými sem rúmar þvottavél og þurkara og hillur þar fyrir ofan. Snúrur við loft og dúkur á gólfi.

Innréttingar og gólfefni:  Harðparket á stofu og herbergjum. Flísar á anddyri, eldhúsi og hluta að gangi eru vandaðar póleraðar í dökkum lit. Flísar á baðherbergi og dúkur á þvottahúsi.
Innihurðar eru hvítar með skyggðu gleri sem veitir birtu inn á herbergisgang. Fataskápar í herbergjum hafa verið endurnýjaðir og eru frá Ikea.
 
Nánari upplýsingar veitir:
Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali. í síma 618-0064 / solvi@valholl.is 
 – eða skrifstofa / s.588-4477 / valholl@valholl.is
 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900 kr.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
12/06/201832.700.000 kr.41.500.000 kr.110.4 m2375.905 kr.
19/10/201522.850.000 kr.25.200.000 kr.110.4 m2228.260 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (38)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Apalskarð 4B íb. 201
Bílastæði
Opið hús:13. ágúst kl 17:00-17:30
Apalskarð 4B íb. 201
221 Hafnarfjörður
116.3 m2
Fjölbýlishús
413
739 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Skoða eignina Apalskarð 4B íb. 101
Bílastæði
Opið hús:13. ágúst kl 17:00-17:30
Apalskarð 4B íb. 101
221 Hafnarfjörður
119.1 m2
Fjölbýlishús
413
721 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 19,íb. 602
Bílastæði
Efsta hæð
Hringhamar 19,íb. 602
221 Hafnarfjörður
98.3 m2
Fjölbýlishús
413
833 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 15,íb.702
Bílastæði
Efsta hæð
Hringhamar 15,íb.702
221 Hafnarfjörður
100.2 m2
Fjölbýlishús
312
917 þ.kr./m2
91.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin