Guðmundur Þór Júlíusson og Ástþór Reynir, löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu, kynna í einkasölu:Virkilega fallega, bjarta og rúmgóða þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð í vönduðu lyftuhúsi við Kristnibraut 79, 113 Reykjavík. Eignin er samtals 108,1 fm, þar af er sérgeymsla 10,9 fm. Frábær staðsetning í fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir, útivistarsvæði og fallega náttúru.
✅
Skoðaðu eignina í 3D Íbúðin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, bjarta stofu/borðstofu, eldhús, sér þvottahús og sérgeymslu í sameign.Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.is eða á Ástþór Reyni í síma 899-6753 eða með tölvupósti á netfangið arg@remax.isNánari lýsing:Forstofa er rúmgóð með flísum á gólfi og góðum tvöföldum fataskáp sem nær upp í loft.
Stofa/borðstofa er einstaklega björt og rúmgóð, samliggjandi eldhúsi með harðparketi á gólfi og útgengi út á vestursvalir. Af svölunum er fallegt útsýni yfir gróinn garð með leiksvæði og til sjávar.
Eldhús er með harðparketi á gólfi, fallegri hvítri innréttingu og flísum á milli efri og neðri skápa. Tvöfaldur ofn, þar af annar með innbyggðum örbylgjuofni, spanhelluborð með innbygðum háfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með harðparketi á gólfi og góðum fataskáp.
Barnaherbergi er rúmgott með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað með flísum á gólfi og Fibo-veggplötum. Þar er sturtuklefi, upphengt salerni, handklæðaofn og falleg innrétting með skúffum og innfelldri handlaug.
Þvottahús er innan íbúðar með flísum á gólfi, innréttingu og skolvaski.
Geymsla er rúmgóð sérgeymsla í sameign, 10,9 fm, með hillum.
Í sameign er einnig sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Eignin hefur fengið gott viðhald innan sem utan síðustu ár:Húsið var ástandsskoðað og (2025) var húsið málað og múrviðgert. Þá voru gluggar einnig endurnýjaðir og skipt um gler þar sem þurfti. Ásamt fleiri framkvæmdum.
2025: Þvottahúsinnrétting endurnýjuð
2024: Eldhús endurnýjað.
2022: Baðherbergi endurnýjað
2022: Nýjir fataskápar í svefnherbergi
2015: Gólefni endurnýjað að stærstum hluta
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma
858-7410 eða gj@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma
899-6753 eða arg@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.