Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala í Dalabyggð kynna:
Vesturbraut 6, Búðardal, 70 fm atvinnuhúsnæði við aðalgötuna þar sem nú er rekið kaffihús og blómaverslun.** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, lgf / s. 899 0720 /
hrannar@lifumheima.isVesturbraut 6 er 70,0 fm. atvinnuhúsnæði sem stendur á 445,0 fm. viðskipta- og þjónustulóð við aðalgötuna í Búðardal. Húsið er 30,8 fm. timburhús sem flutt var á staðinn árið 2001, farið var í stórar framkvæmdir árið 2017 þegar húsið var stækkað um ca. 40 fm., eldri hluti endurbyggður og innra skipulagi breytt svo húsið myndi heild. Eldri hluti gerður fokheldur og endurbyggður. Eignin skiptist í eitt stórt rými, tvö salerni og eldhús. Tveir inngangar. Timburverönd. Bílastæði fyrir aftan hús.Helstu framkvæmdir árið 2017:- Eldri bygging endurbyggð samhliða stækkun hússins
- Tvöföld einangrun í gólfi
- Þak endurnýjað í heildsinni, nýir bitar, einangrun, dúkur, klæðning á þak.
- Gluggar og gler endurnýjað (utan tveggja glugga)
- Ný útidyrahurð að framan
- Vatnslagnir endurnýjaðar, allar utanáliggjandi.
- Rafmagn endurnýjað, utanáliggjandi (tekið út af frumherja).
Frágangur klæðningar að utan er eftir að hluta og í kringum glugga. Unnið er að fá uppfærða skráningu á stærð hússins hjá þar til bærum aðilum.
Hér er gott tækifæri fyrir réttan aðila til að nýta þá mörgu möguleika sem þessi eign býður upp á.Nánari upplýsingar veitir:
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.isLifum heima fasteignasala / s.463 3333 / lifumheima@lifumheima.is