Borg fasteignasala kynnir: Tveggja herbergja íbúð í Vesturbænum. Vel skipulögð íbúð að Hringbraut 107. Mjög góð fyrstu kaupa íbúð. Stutt alla þjónustu í miðborginni og Vesturbænum, göngu- og hjólaleiðir um allt. Samkvæmt HMS er íbúðin skráð 51,6 fermetrar og skiptist í hol, stofu, svefnherbergi, baðherbergi, suðvestur svalir, sér geymslu. Sameign þar sem er sameiginlegt þvottahús, hjóla og vagnageymsla. Á bak við húsið er stór sameiginleg lóð.
Forstofa/hol: Fatahengi og harðparket á gólfi
Stofa: Björt stofa með glugga til suðvestur og harðparket á gólfi
Eldhús: Hvít innrétting með neðri skápum og efri skápum, harðparket á gólfi
Svefnherbergi: Þar er fataskápur og harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Baðherbergi með salerni, sturtu og vask. flísari á gólfi og hluti veggja
Sér geymsla fyrir íbúðina er í kjallara.
Sameiginlegt þvottahús ásamt hjóla- og vagnageymsla.
Íbúð í fjölbýli. Frábær staðsetning í Vesturbænum. Stutt í verslun og þjónustu, leik- og grunnskóla. Vesturbærinn, Grandinn og miðborgin í göngufæri.Nánari upplýsingar:Úlfar Þór Davíðsson, löggiltur fasteignasali á Borg fasteignasölu.
788-9030 / ulfar@fastborg.is
Victor Levi R. Ferrua, löggiltur fasteignasali á Borg fasteignasölu.
868 2222 / victor@fastborg.is
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.